Good-Templar - 01.01.1900, Page 6

Good-Templar - 01.01.1900, Page 6
2 Eitt, sem vafalaust hefix skemt fyrir útbreiðslu „G. T.“ hér í bænum, hefir án efa verið slæm útsending, eða ef tii vill ö,ilu heldnr gersamlegur skortur á allri reglulegri útsendingu. Kaupendur, sem hafa enda borgað blaðið fyrir fram, hafa að minsta kosti kvartað um, að þeir hafi ekki fengið blaðið nema höppum og glöppum og þá mörg blöð í einu. í’etta verður riú ekki lengur svo: bluðið kemur út reglulega livern mánuð og verður sent út um bœ og land undir eins og hvert tölblað er út komið. Ihið er ásetningurinn að láta fáeinar sögur koina í blaðinu — sögur, sem samsvara tilgangi blaðsins auðvitað. Svo er og hugsunin, að fræða lesendur dálítið um, hvað óru lög í regiu vorri. St. T. benti á það í 7. lið í ársskýrslu sinhi síðast (St.-St.-tíðindin, 48. bls.) hve tíðar þrætur og ófar- sælt þras væri í Regiunni, og að það stafaði án efa að nokkru leyti af ókunnugleika manna á lögum Reglunnar, eða ókunnug- leika á þeim skilningi, sem venjan, löghelguð við úrskurði, hefir í þau lagt. Gerið svo vel, bræður og systur, að styðja viðleitni voj-a með því að auka útbreiðslu blaðsins! Iiognmjöll. Nú gengú brennivíns-lögin nýju í gildi á Nýársdag — sællar minningar!____________________ 14 kaupmenn í Reykjavík leystu leyfið. Áður verzluðu 28 nieð áfengi. Sumir láta mikið yfir þessu. Ég þegi að sinni, bið næsta Nýárs og ætla þá að athuga, hvort iunflutningurinn af áfengi hefir minnkað. Reynist það ekki, ja, hver er þá ávinningurinnn ? Má vera innflutn. minnki eða hverfi á stöku verzlunarstað. Vafasamt, hvort vínsalan minnkar í landinu. En hvað sem því líður, þá er það nokkurneginn víst, að fyrir þessi lög stendur þjóðin 15—20 árum fjær algerðu vínsölubanni, en hún stóð um þetta leyti í fyrra.

x

Good-Templar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.