Good-Templar - 01.01.1900, Blaðsíða 7
s
1872 var fyrst lagður tollur á áfenga drykki hér á landi
26. Febr.). Þá trúlofuðust þau Bakkus og Fjárhirzla landsins;
1899 á alþingi giftust þau og urðu hjón. Vínsölulögin nýju
voru heimanmundurinn, sem Bakkus gaf brúðurinni. í’au eru
fasteign, sem hún fær árlegar tekjur af meðan sambúðin varir.
Það sjá allir, að hjónaskilnaður er munum örðugri fyrir bragðið.
— Það var hraparlegt, að nokkrir templarar skyldu vera svara-
menn brúðhjónanna!
Hvernig skyldi Allsherjar-templar br. Malins lítast á slika
starfsemi reglubræðra? Þeir sem vita, hvað hann hefir starf'-
að og ritað gegn Gautaborgar-fyrirkomulaginu tvö síða,stiiðin
ár, geta farið nærri um svarið.
Og nú heflr umdæmis-stúkan tekið rögg á sig og heitir
verðlaunum — heilurn tíu kr! — fyrir að koma upp brotum
gegn vínverzlunarlögunum.
Ég sat nýlega inni hjá kunningja minum, kaupmanni hér
í bænum, sem liefir leyst vínsöluleyfi. „Skrambi eiuð þið
smátækir með verðlaunin, templararnir,“ sagði hanri við mig;
„óg er að hugsa um að fara fram á það við aðra þá kaup-
menn hér, sem eins og ég hafa leyst vínsöluleyfl, að þeir bjóði
tvöföld verðlaun fyrir þetta sama — í viðbót við ykkar boð."
Væri það ekki skrýtið, ef vínsölu-kaupmennirnir og teiupl-
ararnir slœgju sér saman um að veita verðlaun fyrir sama verk
af tilefni því sem nýju lögin gefa? ■— Það er eins og það
bendi á, að nýju lögin sóu sérstaklega gefin til hagsmuna fyrir
vínsalana!
Áður en nýju lögin um háa gjaidið fyrir vínsöluleyfi komu
út, var engum kaupmanni sérlega ant um, að selja mikið af
áfengi fremur en öðrum vörum. Ágóðinn var ekki meiri af
þeim, en af öðrurn vörum alment, jafnvel einatt heldur minni.
Nýju lögin valda því, að hverjum kaupmanni, sem leyfi hefir
ioyst, hh'jtur að verða það hagnaðar-miú, og því áliuga-mál, að
selja nú sem allra-mest áfengi. Gjaldið er svo tilfinnanlega
hátt, að það borgar sig' þvi að eins að leysa leyíið, að salan
verði mikil. Pví meiri sem hún verður, því hetur borgar það
sig! Því er það, að ein stærsta verzlunin hér i bæ selur