Good-Templar - 01.08.1901, Síða 3

Good-Templar - 01.08.1901, Síða 3
91 komast á æðra stig hjá kristnum mönnum, eins og allarmeð- skapaðar, ósjálfráðar hvatir, er stefna í áttina til hins góða. Þær eiga að komast undir áhrif endurfæddrar og siðferði- lega aukinnar skynsemi og uppalast, temjast og styrkjast af endurfæddum guðinnblásnum vilja. Kristnir menn eiga að elska ættjörð sina og þjóð á enn fullkomnari hátt en nokkur heiðin þjóð hefir gjört. Þeir eiga að elska þjóð og iand, eigi að eins vegna þess, að þar er þeim ijúfast að vera, þar njóta þeir gæða lífsins i fylsta mæli, heldur og vegna þess, að þeir vita, að þar eru þeir af Guði settir, þar hefir sjálfur Drottinn gefið þeim átthagana, þar eiga þeir að vinna verk sitt fyrir hans altsjáanda augliti. — Og svo er annað, sem gjörir oss þetta enn ljósara. Vér vitum að vór öll erum börn hins himn- eska föður og að hann elskar oss öll. Fyrir opinberun Guðs vitum vér það, að mannssálin er ódauðleg og eilíf, runnin frá kærleikans föður, honum sem olskar alla menn. í Guðs aug- um er hver einasta mannssál dýrmæt og hann vill ekki að nokkurt mannslíf glatist eða fari forgörðum. Þar sem kærleiki föðursins á himnum kemst inn í mannshjörtun og nær að bræða klakaskorpu sjálfselskunnar utan af þeim, þar valmar ó- sjálfrátt eiska til mannanna, elska til náungans, og þá fyrst og fremst til sinnar eigin þjóðar manna. Menn fara þá að finna til þess, að þeir vei'ða að gæta annars í baráttu lifsins en eigin hagsmuna og unaðssemda; bróðurkærleikinn færist út; menn fara að hugsa um hagsmuni annara, einkum þeirra, er :ið einhverju leyti ætla að dragast aftur úr eða troðast undir í hinum. mikla kappleik lífsins. Kæru tilheyrendur! Þér kannist allir við spámenn Drott- ins, þá er störfuðu meðal hinnar útvöldu þjóðar á dögum hins gamla sáttmála. Ef nokkrir menn á jörðinni hafa verið inn- blásnir af Guði, þá voru það þessir einkenniiegu og djarfmæltu vottar sannleikans. Af hinum upplesnu orðum fáið þér sóð, hve ljósa meðvitund einn þeirra, Jeremías spámaður, liefir um það rúmum 600 árum fyrir Krists fæðingu, að oss beri að olska þjóð vora. Ungur var hann kallaður til spáinanns af Drotni og honum falið að bora vitni hinum guðlega sannleika °g birta þjóð sinni fyirætlanir Drottins á einhverjum hinum mestu hörmungatímum, er yfli; þá þjóð hafa gengið. Hann íann að það var erfitt starf, og hjarta hans kveinkaði sér við

x

Good-Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.