Good-Templar - 01.08.1901, Síða 12

Good-Templar - 01.08.1901, Síða 12
100 Kæru félagsbræður og syatur! Iíöldum þá áfram vongóð í Drottins nafni. Þreytumst ekki, þótt árangurinn sýnist lítill og uppskevan rýr; setjum það eigi fyrir oss, þótt vér bökum oss óvild manna með starfl voru í þarfir bindindismálsins. Látum meðvitundina um það, að vér vinnum í þjónustu hins góða, vera oss nóg laun. Friður hjartans og góð samvizka — það verða jafnan laun þess, sem vinnur í þarfir réttlætis- ins og sannleikans. Öll starfsomi i anda kærleikans hefir bless- andi og betrandi áhrif á vort eigið líf. Almáttugi guð, vert þú í verki með oss og leiðbein oss með þínum anda, svo að allar gjörðir vorar stjórnist af hugar- fari kærleikans ; þá verður starf vort ættjörð vorri til blessunar. „Án máttar þíns vér munum verða í neyð; af miskunn þinni sálir vorar leið.“ Amen. Hófdrykkja og bindindi, Lífsábyrgðarstofnunin „ The Uinted Kingdom Temperance and Provident Institutionu í Lundúnum hefir í B5 ár (frá 1866 til 1900) haldið hófdrykkjumönnum og bindindismönnum ná- kvæmlega aðskildum. Eftir þessa 35 ára reynslu gefur það nú eftirfylgjandi upplýsingar. Moðal hófdrykkjumanna voru á þessu tímabili áætluð 11,293 dauðsföli, en þau urðu 10,850, þ. e. 443 færri en áætlað var. Meðal bindindismanna voru áætluð 8,442 dauðsföll á tíma- bilinu; en þau urðu að eins 6,028, þ. e. 2,414 færri en áætlað var. Meðal hófdrykkjumanna urðu því dauðsföliin hér um bil 39/10 % færri heldur en stofnunin hafði áætlað; en meðal bind- indismanna urðu þau c. 285/8 °/0 færri. Hvað segja hófdrykkjumennirnir um þessar tölur? Vilja þeir enn lialda því fram, að það sé hoit að neyta áfengis í hófi, sem kallað er? lúfsábyrgðar-upphæðir þær, sem stofnunin hafði áætlað að hún þyrfti aÖ borga við dauða hófdrykkjumannanna, námu samtals 2,573,632 sterlingspundum, en þær urðu 2,463,362 pund. Græddi því stofnunin á hófdrykkjumönnunum 110,270 pund. En við dauða bindindismanna hafði stofnunin búist Yið að þurfa að borga 1,996,889 pund, en útborganirnar námu

x

Good-Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.