Muninn - 01.11.1961, Side 17
IÞROTTIR
Knattspyrnumótið.
Knattspymumót M. A. hófst laugardag-
inn 14. okt. 1961 og lauk föstudaginn 27.
okt. á mettíma. Mótinu var þannig hagað,
að fyrst var keppt í nokkurs konar undan-
úrslitum, og tóku þátt í þeim fjögur lið,
tvö lið úr III. ltekk og svo úr landsprófi og
öðrum bekk. Síðan áttu sigurvegarar í þess-
um riðli að keppa við þau lið, sem ekki
ltöfðu tekið þátt í undanúrslitum.
í fyrri riðlinum urðu úrslit þau, að a-lið
III. bekkjar varð efst og vann alla sína
keppinauta með nokkrum mun. Úrslitin
urðu annars þessi:
1. III. a.................... 6 stig
2. Landspr.................. 3 —
3. III. b................... 2 -
4. II....................... 1 -
í riðli efri bekkjanna urðu úrslit þau, að
lið III. a. sigraði, eftir að hafa háð hörku-
spennandi úrslitaleik við V. bekk, sem lauk
með sigri III. a., tveimur mörkum gegn
einu.
Úrslitin urðu annars þessi:
1. III. a.................... 6 stig
2. V......................... 4 -
3. IV........................ 2 -
4. VI........................ 0 -
Um leiki mótsins er það annars að segja,
að þeir voru mjög misjafnir, en þar ber
hæst úrslitaleik V. og III. bekkjar, sem var
sæmilega leikinn af beggja hálfu, en þó voru
V.-bekkingar fremur slappir. Úrslitin hefðu
samt getað orðið þeim í hag, ef þeir hefðu
náð vel saman, því að margir óðir einstak-
lingar eru í liðinu.
Lítum nú nánar á liðin:
III. bekkur. Liðið hefur á að skipa létt
leikandi framlínu, sem oft náði vel saman.
\'örn liðsins var fremur opin og mætti fá
meira út úr liðinu með meiri samæfingu
og tilsögn.
IV. bekkur. í heild var liðið fremur lé-
legt, en samt sáust í því nokkrir ljósir
punktar.
V. bekkur. Liðið er ekki eins gott og það
var í fyrra, enda hefur það misst marga af
sínum beztu mönniun. Framlínan náði
sjaldan vel saman og vömin var oft fremur
stöð, en hörku liefur liðið nóga
VI. bekkur. Það eru víst engin áhöld um
að þetta var lélegasta liðið í keppninni,
enda flestir liðsmenn þess menn, sem ekk-
ert koma nálægt íþróttum utan þess, er þeir
keppa í knattspyrnumóti skólans á haustin.
hjá.
Frjálsiþróttamótið.
Hið árlega frjálsíþróttamót skólans átti
að fara fram dagana 28. og 29. okt. Keppt
var í fjórum greinum fyrri daginn, en vegna
veðurs var keppni frestað síðari daginn. All-
góður árangur náðist, en kuldi háði kepp-
endum mjög.
Þessi árangur náðist:
100 metra hlaup:
1. Steinar Þorsteinsson, IV. b. 11.6 sek.
2. Þormóður Svavarsson, III. b. 11.9 -
3. Sveinn Sæmundsson, VI. b. 12.0 -
Langstökk:
1. Kristján Ólafsson, V. b. 5.67 m
2. Reynir Unnsteinsson, III. b. 5.47 —
3. Asbjörn Sveinsson, V. b. 5.46 —
Hástökk:
1. Ingvar Arnason, V. b. 1.50 m
2. Gunnar Höskuldsson, III. b. 1.45 —
3. Steinar Þorsteinsson, IV. b. 1.45 —
Kúluvarp:
1. Barði Þórhallsson, V. b. 11.53 m
2. Þór Valtýsson, IV. b. 11.15 —
3. Asbjörn Sveinsson, V. b. 10.31 —
M U N I N N 17