Heimilisblaðið - 01.01.1922, Blaðsíða 16
Í3EÍM1LISBLAÐIÐ
Í4
Hrannaslóð, sögur, Rvík.
Bókav. Arinbjarnar Svein-
bjarnarsonar. 1921.
Hér sendir Sigurður Heiðdal frá sér tóli'
smásögur. Þær eru allar dregnar út úr is-
lenzku þjóðlífi og íer höf. yfirleítt vel með
það efni, sem hann tekur sér hér fyrir
hendur að yrkja um. Sögurnar eru látlaust
skrifaðar, enginneldhúsrómaanblæryflr þeim
og ekkert málskrúðs-hrófatildur, en þetta
tvent vili einkenna um of nútiðarskáldskap
vorn; ýmsar myndir, sem þar er verið að
draga fram úr þjóðlífi voru, eru því eins
óskyldar og ólíkar eins og lambið tófunni.
Þess vegna er svo ánægjulegt að fá þessar
sögur Sigurðar. Sagan »Guðmundur á
Grund« á erindi til margra og er alvarleg
áminning; er raunalegt, þegar miskilningur
rikir milli foreldra og barna, hefi eg þekt
dæmi í raunveruleikanum ekki með öliu
ósvipað þessu. — Siðasta sagan, »Jón i
Litlabæ« er falleg; hún sýnir fátæka dreng-
inn viljasterka, og fulltíða manninn, sem
kominn er til vegs og virðingar, en sem
ekki ofmetnast, heldur man sína fyrri tið,
þakkar Guði góðar gjafir og heldur trygð
við fátæklega kotið, þar sem hann ólst upp
bjá bláfátækri móður.
Eg er viss um, að þessar sögur verða
vinsælar út um sveitir, en eg er ekki
jafnviss um, að þær falli í smekk unga
fólkinu i kaupstöðunum, sem helst virðist
vilja lesa það eitt, sem gleypa má í dag og
gleyma á morgun.
Barnasögur og kvœði, eflir
Hallgrím Jónsson, kenn-
ara. — Bókaverzl. Guðm.
Gamalíelssonar. 1921.
Margar aí þessum sögum era kunnar
áður og hafa náð vinsældum, en hér er
nokkrum sögum bætt við og eru þær sum-
ar ágætar, t, d. sagan: »Hvor er meiri«.
Hallgrími .Tónssyni er vel sýnt um að
skrifa sögur fyrir börn, einnig kvæðin eru
mjög lagleg og set eg hér eitt til sýnis,
»Lœrðu að stýraa:
»Unglingur kann ekki að stýra,
Ýmsar stefnur knðrinn tekur.
Flestir meta farminn dýra
fyrst — þegar upp á skerið rekur.
Hafðu á bátnum beztu gætur,
beygðu ei í kjölfar kinna.
Mundu það, að mamma grætur
raölvirðu fleyið vona þinna«.
Bókin fæst hjá öllum bóksölum og hefir
með sér í veganesti hin beztu meðmæli
Heimilisblaðisns. j. ii.
Veggalmanak hefir hr. S. Á. Gislason,
ritstjóri »Bjarma«, gefið út fyrir árið 1922.
Þar er ritningarstaður við hvern dag árs-
ins, með tilvitnun i Biblíuna; geta menn
þarna daglega lesið fyrirhafnarlaust ýmsa
fagra, lærdóms- og huggunarríka ritningar-
staði; hverjum mánuði fylgir einnig mynd
úr æfisögu Jesú Krists. Framan á almanak-
inu er mynd af Jesú, þar sem hann er á
bæn. — Ef einhverjir kaupendur Heimilis-
blaðsins vilja, þá mega þeir snúa sér til
mín og eg skal sjá um, að þeir fái alma-
nakið; það kostar 2 krónur og þær verða
að fylgja pöntun. Annars geta menn pantað
það beint frá útgefandanum. ./. II.
1 hverri borg erlendis eru verksmiðjur,
sem hreinsa föt og lita. Eru þetta bin mestu
þægindi, þvi oft verða menn að kasta hálf-
slitnum fötunum; hér í Reykjavík hafa
margir sent þau til útlanda til þess að láta
hreinsa þau.
Nú er komin ein slík verksmiðja hér í
Reykjavik og heitir hún »Etnalaug Reykja-
víkur« og er á Laugavegi 32 B. Hafa þeir