Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1922, Síða 1

Heimilisblaðið - 01.12.1922, Síða 1
Meimilisbiaðið kemur ^ít einusinni í mánuði, X2 blöð á árí, x6 síð- ■ur í stóru broti. Ar- gangurinn kostar 5 krónur hér á landi 6 kr. crlendis. Heimilisblaðið Afgreiðsla Heimiftr- blaðsins cr í Bcrg~ staðastræti 27. Hiís ei opin allan daginn. Útgefandi blaðsins er til viðtals kl. i2—x. Mælið með HeiiRÍlöi blaðinu við vini yðar. XI. árg. Reykjavik í des. 1922. 12. tbl. 777 lesenda Heimilisb/aðsins. Eg vil hér með vekja athygli yðar, heiðraðir lesendur, á því, að eg hefi byrjað með bókaverzlun i sambandi við afgreiðslu Heimilisblaðsins og Ljósberans. og heíir hún eingöngu á boðstólum kristilegar bækur og rit. Þó skal það strax tekið iram, að verzlunin selur ekki þær bækur, sem véfenga áreiðanlegleik Heilagrar ritningar og neita höfuðsannindum kristindómsins, þó þær bækur kunni að hafa yfir sér að meira eða minna leyti kristilega blæju. Hér fylgir á eftir skrá yfir allar þær bækur, útlendar og innlendar, sem verzlunin hefir. Vona eg að islenzku bókunum fjölgi bráðlega. Af dönskum bókum hefi eg míkið úrval og ílestar eftir þekta höfunda. Væri nú óskandi að menn keyptu þessar bækur og læsu þær, fremur en útlent skáldsögurusl, sem hingað flyzt svo mikið af. Mig langar þó sérstaklega til að vekja athygli á bókunum frá trúboðsakrinum og tefisögunum. Það er mál til komið að vér íslendingar förum að kynna oss þá starfsemi úti i heiminum, sem heitir heiðingjatrúboð. Það mál láta aðrar kristnar þjóðir sig miklu skifta. T. d. lögðu Bandaríkin síðastliðið ár svo mikið fé fram til kristniboðsins, að ef vér íslendingar hefðum lagt fram í jöfnu hlutfalli, þá hefði vort framlag orðið 1 miljón kr. Þar gefa vitanlega margir auðmenn stórar upphæðir, t. d. J. Rockefeller, og sonur hans var sjálfur austur i Kína að líta eftir trúboðsstarfinu i fyrra, en margir gefa þar líka smáar upphæðir og af fátækt sinni; en kornið fyllir mælirinn. Það er undursamlegt að lesa um þá fórnfýsi, sem kemur fram hjá þeim, sem leggja lif sitt og timanlega vellíðan í sölurnar, til þess að hlýðnast boði Jesú Iírists: »Farið og gerið allar þjóðir að minum lærisveinum og skirið þær til nafns Guðs föðurs, Sonar og Heilags anda«. Hámentaðir menn og tiginbornir, sem framtíðin brosir við, yfirgefa alt og flytja til villimannanna og mannætanna i Afríku, þar sem hverskonar þrengingar og hættur bíða þeirra, til þess að flytja þeim fagnaðarerindi Jesú Krists. Heimilisblaðið ætlar framvegis að flytja fréttir frá héiðingjatrúboðinu og greinar um það mál, ef ske kynni, að það yrði til þess að vekja menn til umhugsunar um mál- ið og kveikja löngun i brjóstum margra til að styrkja heiðingjatrúboðsstarfið. Og æfi- sögur trúboðanna, sem hér eru auglýstar, eru ómissandi þeim, sem vilja kynnast heiðingjatrúboði. Og málið er sannarlega þess vert að menn kynni sér það. Eins og flestum mun kunnugt, starfar nú islenzkur trúboði, Ólajur Ólafsson i Kína og væri það nsetnaðarmál fyrir oss Islendinga að láta hann fá nóg fé til starfsins, og blessun Guðs Oiundi margfaldlega koma yflr oss fyrir það. Eg óska svo lesendum Heimilisblaðsins gleðilegra jóla og þakka þeim fyrir þetta ®r, sem nú er að hverfa í aldanna skaut, Jón Helgason,

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.