Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1922, Side 15

Heimilisblaðið - 01.12.1922, Side 15
HEIMILISBLAÐIÐ 157 Trúmálevika StúdeDtafélagsins. (Erindi og umræður). (Aðsent). Eg er nýbúinn að lesa þessa bók og hefi lesið hana gaumgæfilega. En ávalt er eg les trúmálaerindi, þá leita eg eftir þeirri mynd af Kristi, sem guðspjöllin 15rsa fyrir mér, og eins og hún hefir mótastd sálu minni eða eg hefi fyrir Guðs náð tileinkað mér hana. Hann er fyrst og fremsl Jrelsari minn, dáinn fyrir mig mér til syndafyrir- gefningar og upprisinn mér til réttlætingar. t*ar næst er hann fyrirmynd mín um rétta hlýðni við lögmál Guðs eða hvernig eg eigi að sýna trú mína í verkunum. En af þvi að eg er sannfærður um það af reynslunni, að eg geli eigi af eigin krafti né skynsemi h’úað á’frelsara minn og Drottinn, né breytt eins og hann breytti, þá trúi eg á heilagan anda, trúfastan hjálpara minn til trúar og helgunar. Þess vegna gæti eg þess jafnframt við lestur hvers trúmálaerindis, hvort leitað sé aðstoðar heilags anda til að hlýða boð- um Drottins eða rækja kristilegar dygðir. Hvað kenna þá nýguðfræðingarnir? Guð er einn, Jesús Kristur, fullkomnastur allra manna, hefir kent oss að þekkja hann sem kærleiksríkan föður. Allir kristnir menn játa, að Jesús Kristur hafi verið mestur og beztur atlra þeirra manna, sem á jörðu hafa lifað og því verið nefndur ímynd hins ósýnilega Guðs. Hjá honum er guðræknin, góðleikurinn, guðstraustið og kærleikurinn í sinni fegurstu mynd, svo að hvergi bei skugga á. Andi Guðs bjó í honum. En hvernig fer svo um eftirbreytnina? Þar ræður kraftur mannsins og skynsemi úrslitunum. Andi Guðs er i hverjum manni. Það er samvizkan. Sá, sem vill verða eftir- breytandi Krists, á að þroska samvizku sína af eigin ramleik, til þess að geta skynj- að, hvað er í samræmi við anda eða sam- vizku Krists. Og svo á hann að haga breytni sinni eftir þvi, af eigin krafti, Aðstoð heilags anda, sem sérstakrar guðlegrar persónu, er hvergi nefnd á nafn. Mennirnir frelsast fyrir eftirbreytni sína, en ekki fyrir blóð Jesú Krists. Hér er því greinilega um þrenning- arafneitun að ræða. Hvað kenna guðspekingarnir? Guð er alt og alt er Guð. Jesús Kristur er maður, kominn úr álögum; aðrir menn eru guðir í álögum. Kristur er oss hin full- komnasta fyrirmynd, sú æðsta fylling guð- dómsins, sem vér þekkjum, í heiminn kom- inn eingöngu til að hjálpa. En frelsari eða friðþœgjari er hann ekki. Sérhver maður frelsast fyrir eftirbreytni sína. Alt á hann sjálfur að gera. Hann á að sigra sinn verri mann með samúðartilfinningu, en þá til- finningu á hann að gefa sér sjálfur, þroska hjá sér þá andlegu kend, er sér og finnur, að allar mannssálir eru systur i álögum. Hann vantar hvorki vit né getu til að gera lifið hjart; hann á að skapa í sér og öðr- um viljann og bróðurþelið, til að gera ver- öldina að Paradís. Hér er ekki um neina sérstaka guðlega hjálp að ræða, því að hver maður er sjálfum sér guð. Hann er sinn eigin frelsari og hjálpari til helgunar og — eilífs lífs. Hvað segja svo öndungarnir? Guð er einn. Jesús Kristur var maður, óendanlega miklu æðri, en friðþœgjari er hann ekki. Hver maður á að íriðþægja fyrir sig sjálfur með því að þroska samvizku sína, svo að hann geti skynjað, hvort líf hans er í samræmi við anda Krists og breytni. Þá er alt fengið. Þá keppir hann að því marki og þá er honum vis miskunn Guðs. Um sérstaka leiðsögu heilags anda er ekki að ræða. Maðurinn fórnar sjálfum sér eins og Kristur og það verður honum að endurlausn. Iíristur deyr, eins og hver annar maður, og upprisa hans er alveg samskonar og andabirtingar nútímans. Englarnir við gröfina voru líka andar framliðinna. B.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.