Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1933, Qupperneq 1

Heimilisblaðið - 01.09.1933, Qupperneq 1
 XXII. árgangur Reykjavík, sept — okt 1933 9.—10. tölublað Sahara-eyðimörkin Svo nefnist hin mikla eyðimörk i Norður-Afriku. Hún liggur á milli Atlantshafsins og Nilárdalsins og að norðan nær hún að Miðjarðarhafinu og Atlas-fjöllunum. I suðri þokast hún stig af stigi fram að saltheiðunum og gresjunum i Súdan. Venjulega eru takmörk hennar sett við fljótið Senegal, Timbuktu við Niger (Svartá), Tintymma-saltheiðina, fyrir norðan Tsad-vatnið og þaðan gengur hún í boga alt til Nilar. Flatarmálið er um 6 1/5 miljón ferkm. eða hér um bil 3/5 af Norð- urálfunni. Pað er hinn síblásandi norð-austan- staðvindur og síþurri um leið, sem veldur því að þetta geysi landflæmi er eyðimörk ein. Fjöll eru þar um 20% (Air, Ti besti, Ahaggar), sandeyj- ar 2% (Oaser), 15%, grjótauðnir 40%, og sandauðnir 20—25%. 1- búar eru taldir um 2y2 milj. Þeir eru flestir Berbar að kyni og meira og minna blandaðir svertingjum (Tuaregarn- ir). Fyrir vestan kaup- lestaleiðina Tripolis— Kuka eru Tibbúarnir í Tibesti-fjöllunum. En þar eru líka Arabar, Gyð- ingar og svertingjar á vlð og dreif. Arabiska er þar aðaltunga, allir eru þeir Múhameðstrúar og afar fjandsamlegir Norð- urálfumönnum. En ann- ars er lltill munur á Sandeyja-búum, sem stunda akuryrkju og fjallabúum og þeim sem lifa hirðingjalífi um heiðar og öræfi.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.