Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1933, Side 22

Heimilisblaðið - 01.09.1933, Side 22
146 HEIMILISBLAÐIÐ ar lifnaðarhætti, og ég var lienni aldrei verulega kunnug. En frá því ég var lítil, dáðist ég að Lynn frcenda. Fyrir skömmu skrifaði mamma mér, að hún kefði heimsótt Lynn frænda, og að hann væri aumkvunarverður Vesalingur. Alt í einu varð mér það iljóst, að þama væri verk fyrir mig að vinna, ef aðeins ég fengi leyfi hans til þess — og það út af fyrir sig var vandamál, sem gaman var að vita kvernig yrði leyst. Herbergisþjónn frænda míns sótti mig á stöðina — sérstaklega geðsiegur ungur Irlendingur. Hann hafði þjónað hermönn■ um í franska sjúkraiiíisinu, þar sem Lynn var síðast. Þar áður hafði Pat verið í her- deild, en særðist svo mikið, að hann var ekki sendur þangað aftur, lieldur látinn þjóna í sjúkrahúsinu, þar sem hann hafði legið. Hann var svo sendur heim með dr. Bruce og yfirgaf hann ekki upp frá því. »Vissidega fagna ég því, að þér komuð, ungfrú,« sagði Pat, þegar við ókum heim að húsinu í gamla hestvagninum, sem frændi minn var vanur að nota á lœknis- ferðum sínum. »Majorinn hefir þörf fyrir félagsskap — þó hann geri sér ekki grein fyrir því sjálfur.« Þó Pat segði ekki meira, var mér það strax Ijóst, að Lynn hafði ekki bara gert liann að þjóni sínum, lieldur einnig að fé- laga. Mig furðaði það ekkert. Pat var reglulega laglegur piltur, með falleg, írsk, gletnisleg, blá augu. »Hefir liann alls enga félaga?« spurði ég. »Ekki nema dr. Mac Farland og einn eða tvo aðra lækna, sem líta inn stöku sinnum. Hann þarf á margskonar félags- skap að halda, er ég hræddur um. Frú Coon og Nara eru einu konurnar sem liann sér — ráðskonan og þernan. Hann er alveg ólíkur sjálfum sér, síðan hann meiddistx Eg fór þá að spyrja hann, og fékk ým- islegt að vita, sem ég vissi ekki um. Það var að lieyra, að dr: Bruce hefði reynt að halda áfram að vinna, eftir að hann fékk þessi voðalegu meiðsli í loft-árásinni, þar til liann, vegna blóðmissis, hneig niður; hefði ekki svo farið, kynni honum að hafa batnað betur. Svo hafði viljað til, að Pat liafði sjáif- ur orðið fyrir sprengikídu á sömu stundu og dr. Bruce, og áður en hann liné nið- ur gat hann bundið svo um sár Pats, að blóðmissir hans stöðvaðist. Þessu gat Pat ekki gleymt og bauð að þjóna dr. Bruce meðan hann lifði. Þegar ég hafði heyrt þetta, lcom mér það ekki kynlega fyrir, þó Pat væri Lynn meira en almennur þjónn eða hjúkrunarkona. Þegar ég kom niður til að borða miðdeg- isverð, var ég látin fara inn í borðstofu, en Lynn frændi fékk sinn mat færðan á bakka inn í bókaherbergið, þar sem liann sat í hjóla-stólnum sínum, mjög skringi- legu áhaldi, dúðaður í alskonar umbúðir. Miðdegisverðurinn var góður, og meðan ég naut lians, var ég að vélta því fyrir mér, hvernig ég œtti að fara að því að kornast hjá að móðga liann. Mér var fylli- lega Ijóst, að liann œtlaði mér hvorki að vera systurdóttir sín, hjúkrunarkona eða nokkuð annað, sem ég óskaði að vera fyr- ir hann. Hann ætlaði að vera kurteis og reyna að þola lieimsókn mína. Eg t.ók með mér nokk'uð af góðum föt- um. Satt að segja notaði ég aillangan tíma til þes-s í liaust, að útbúa mig með falleg föt. Þess þurfti ég með, og þar sem ég verð að ganga svartklædd í tvö ár enn — eftir fyrirskipun mömmu — þá fanst mér það yrðu þó að vera falleg svört föt. Ætlun mín var engan vegin sú, að vera hin glaða ekkja; en þar sem Alec hafði nú altaf haft svo mikia ánægju af þrvi að sjá mig líta vel út, þá fanst mér nú einhvernveginn, að ég mundi gleðja hann með því, að halda mér eins mikið til eins og ég hafði gert meðan liann lifði. Hattagerða og kjólasaumakonurnar mínar voru báðar mjög góðar og vissu hvað mér fór vel. Sameiginlega hafði þéim tekist að gera föt sín svo úr garði, að þegar ég klæddist þeim, var mér starsýnt á sjálfa mig í speglinum. Þú veizt, Katrin, betur en nokkur ann- ar, hve þreytt ég er á öllu öðru en að skreyta. ekkjuna. Eg er ekki mikið fyrir ferðalög, og ég liefi ekki fengið uppeldi til þess að vinna neitt sjálfstætt. Skólam- ir, sem ég var látin ganga í, voru ekki af því tagi, sem búa ungar stúiícur undir ann- að en ríka giftingu. Eg hefi ekki nokkra löngun til að taka neitt fyrir, eins og svo margar konur gera, þegar þær eru búnar að missa sína, og eru orðnar einar eftir. Jósefina Brendall, vinkona mín, hefir sett á fót hattabúð, bara að ganvm sínu, þótt

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.