Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1933, Qupperneq 18

Heimilisblaðið - 01.09.1933, Qupperneq 18
142 HEIMILISBLAÐIÐ hliðar. Það var eigi sýnilegt, að hann ga'fi þeim nokkurn gaum, en samt fór hrollur um hann, er þessi þorparalýður glápti á hann með augunum, og mest af öllu ótt- aðist hann hið eina leiftrandi auga Mótlags gamla. Nú var hann kominn inn í miðjan ljósbjarmann frá bálunum, og enn hafði enginn látið til sín heyra. Hann gekk beint fram fyrir Tagar Kreddache og fleygði sér flötum niður fyr- ir fætur hans. »Faðir minn!« mælti hann. Næstu augnablikin þorði hann ekki að draga andann. En svo var þessi ægilega bið rofin, er höfðinginn hrópaði i skipunarróm: »Stattu upp!« Nú stóðu þessir tveir menn andspænis hvor öðrum og horfðust í augu. Háir og sinastæltir voru þeir báðir, og undir köldu yfirbragði þeirra tóku þeir mat hver á öðrum eins og tvö villidýr, er mætast af tilviljun. Augu Tagars voru köld og óbreytileg, og þó var Caverly alveg viss um, að hann hafði þekt aftur bæði hring- inn og fílabeinsverndargripinn. Alt í einu rauf hann þögnina, og það skeði svo skyndilega og óvænt, að jafnvel hermenn hans hrukku við. »Bjóðið höfðingjasoninn velkominn!« hrópaði hann. Hann breiddi út faðminn og svipur hans varð eins og ofurlítið mild- ari. »Faðmaðu mig sonur minn!« mælti hann. Sverðin ruku úr slíðrum beint í loft upp. Kliður af syngjandi stáli og drynjandi raddir rufu á ný eyðimerkur-kyrðina, er allur hópurinn hrópaði: »Velkominn!« Tagar steig eitt skref aftur á bak og leit hvössum rannsóknaraugum á komu- mann. Það var auðséð, að hann dróg eigi kensl á strokuþræl sinn. Hann virtist eigi vera í vafa um, að þessi stæriláti skraut- klarddi maður væri raunverulega Sídí Sassí, sonur hans, er nú væri orðinn full- þroska maður, mikill á vell eins og Kredd- ache-ættin átti að sér. Nú var aðeins eftir að komast að því, hverskonar maður væri orðinn úr höfðingjasyninum. »Hvaðan kemurðu?« spurði hann. Caverley kinkaði kolli í norð-vestur. »Eg kem frá hafi gegnum eyðimörkina.« »Fylgdarlaus? Gangandi?« »Fylgdarlið mitt var drepið, og úlföld- um mínum stolið.« Tagar hleypti brúnum. »Hverjir gerðu það?« »Það ætti þér að vera kunnast um;« mælti Caverly rólega. Dauðaþögn féll á mannþyrpinguna um- hverfis bálin. Menn skotruðu augum hver til annars, en enginn mælti orð af munni. Hið skeggaða andlit Tagars var alveg svip- laust, en glytti í arnaraugu hans undir þungum brúnunum. »Voru menn þínir félagar eða vinir þín- ir?« spurði hann loksins. »Aðeins fylgdarmenn,« mælti Caverly, »og þrælar.« »Þá er alt gott! Úlfaldar þínir og far- angur er hérna. Þú hefir aðeins mist menn- ina.« Tagar sveiflaði handleggnum út ýfir hermannahóp sinn, er þyrptist utan um þá. »Og þú hefir unnið meira, en þú mistir!- Nú var okinu létt af hópnum. Þeir ráku upp glymjandi hlátur, og höfðinginn hló einnig. »Spaugið hverfur aftur og hittir Tagar fyrir,« mælti hann góðlátlega. Skellihlátur glumdi við í hermannahópn- um. Hyllingarhrópin gullu við á ný, og' sverðin sungu undir. Zouaiarnir kunnu að taka gamni, þó að það gengi út yfir þ? sjálfa. Þeir hlógu af öllu hjarta og skemtu sér, þar sem það þrátt fyrir alt var eng- inn skaði skeður. Höfðinginn varð fyrstur til að setja upp alvörusvipinn á ný, og þá sljákkaði þegar gáskinn í hinum. »En hvers vegna varst þú ekki nær- staddur, þegar þessi smávægilegi árekstur varð í nótt? Þú hefðir getað kallað til okk- ar og sagt til nafns þíns, og þá hefðirðu sparað okkur alla fyrirhöfnina!« — »Ég hafði sent lest mína hálfa dagleið á undan mér að næsta áfangastað,« mælti Caverly. »Ég nam sjálfur staðar ásamt þræli mínum til að njóta svefns og hvíldar, meðan síðdegishitinn var mestur. Ég he'ld. að fjandinn hafi farið í úlfaldana! Þeir slitu sig lausa og þutu út í buskann. Ég og þrælsnáðinn minn urðum því að labba á stað fótgangandi. Og þegar við loksins komum á áfangastaðinn, þá var þar um- horfs, eins og þér er bezt kunnugt. Hópur hraustra hermanna hafði kom- ið þangað á undan mér,« bætti Caverly við alvarlega. »Og þegar ég sá, hvernig umhorfs var, datt mér alt í einu í hug, að það hlyti að vera þú, sem þarna hafðir

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.