Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1933, Side 21

Heimilisblaðið - 01.09.1933, Side 21
HEIMILISBLAÐIÐ 145 ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^ : ■ J* r ■■. * : S ‘i v EFTIR GRACE S. RICHMOND IV. Þegar Nancy seinna um kvöldið, var komin upp á herbergið sitt, skrifaði hún bréf til vinkonu sinnar, dr. Katrínar Ferr- is. Það bréf gat hún ekki skrifað niðri í stofunni, að viðstöddum þeim, sem bréf- ið snerist aðallega um. Strav á eftir kveðj- unni komst hún inn á aðalefni bréfsins: VesaMngs, kœri, ganili maðurinn _ — hvernig hcunn leit út þegar ég kom inn! Ég sá um leið og ég kom til hans, að hann vildi enga meðaumkvun iiafa. Holdlítill, þreyttur og illur 'í skapi — þannig leit hann út; og þó var vUjaþrekið bersýnilegt í svip hans, og látbragði, og það liefir hald- ið lífinu í honum gegnum alla þessa hryUu- legu uppskurði og þjáningar, eins og mér áður var Ijóst. Auðvitað iangaði mig mest til að flýta mér til hans, svo ég gæti um- faðmað hamn og lagt höfuð hans undir vanga ménn — en mér var jafnframt Ijóst, að það væri það hejmskulegasta, sem ég gæti gert. Hann tortrygði mig -— var dauð- hræddur um að ég mundi kernia í brjósti um sig og fella tár yfir eymd sinni. Þá setti ég á mig harðneskjusvip, gekk hljóð- lega til hans„ þar sem hcrnn sat, og heils- aði lionum vingjamlega — ekki þó of vin- gjarnlega — þá býst ég við að honum hafi þótt nóg wm Eftir stutta stund var mér vísað til her- bergis mfns. Það er skringilegt, hvernig þessir lœknar halda áfram að skipa þeim fyrir, sem í kringum þá eru, jafnvel þó þ&ir sjálfir séu orðhir sjúklingar. Minn- ingar frá œsku minni, um dr. Lynn Bruce, komu þá skýrt fram í huga minn, þegar hann eitt sinn mætti mömmu í sjúkra- húss-forstofu, eftir að hafa nýiega frelsað barn, sem vinkona mömmu átti, úr dauð- ans greipum, og sem þakkað var hans sér- staka dugnaði og kunnáttu. Mamma, sem er nokkuð tilfinningarík, œtlaði að hlaupa til hans og fara að dást að dugnaði hans og viti. Hann rétti út aðra höndina, tú þess að halcla henni í mátulegri fjarlœgð, og sagði: »Haltu þér í skefjum, Barbara, má vera að þú þurfir seinna á þvi að hcdda.« Þess vegna réði ég það við mig, löngu áður en ég kom, að halda mér í skefjum, ef ég cetlaði mér að komast af við Lynn frænda. En hamingjan góða, hvemig var annað en hœgt að kenna í brjósti um •hann, niðurbrotinn eins og hann var, þegar hann var að verða nafnkunnur lceknir, án þess að liafa svo mikið sem heiðurspening, til þess að liengja sig við. Sjúkrahúsið, sem hann vann á, sem sáralæknir, var sprengt upp i loft-árás; hann meiddist svo mildð, að þeir gáfu hann hvað eftir annað upp. Það eina„ sem hann gat haft von um að geta nokkumtíma unnið, var að skrifa rit- gerðir um lœknisfræðileg efni — enginn mögufeiki að hann gæti starfið að nokkr- um framkvœmdum í sinni grein. Hann var einn af þessum grannvöxnu, sinasterku mónnum, sem aldrei þreytast, hvað mikið sem þeir leggja á sig — hann var altaf tilbúinn að byrja á nýju verki, eins og lmndur, sem er tilbúinn að grípa nœsia bein. Herbergið, sem frú Coon, ráðskona frænda míns, hafði útbúið handa mér, er þægilegt, en nokkuð skuggálegt. Þannig er alt húsið. Það var heimili ömmu minnai , frú Bruce, og lá þá í miðjum bænum, þar sem nú eru aðeins fáeín gömul hús eftir. Þar eð Lynn frændi var ekki kvæntur maður, var hann hjá henni þar til hann fór til Frakklands . Hún dó meðcm hann var þar, og var þá ekki annað lifandi af fjölskyidunni en hann og systur hans tvœr, móðir mín og María frænka. Hann var þeirra yngstm. Þegar hann svo kom heim aftur, var hann fluttur til síns ganila heimilis, þó þaú vœri ömurlegt, og, vegna vaxtar borgar- innar, alt umhverfið væri bygt húsum, nema gamli, múrgirti garðurinn. Ég kom hingað nokkrum sinnum sem barn, áður en ég fór í skóla jí New-York og París. Amma mín hafði enga liugmynd um okk-

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.