Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1933, Síða 6

Heimilisblaðið - 01.09.1933, Síða 6
180 HEIMILISBLAÐIÐ hefði ráð á að kaupa hana. — Á heimili frænda síns hafði Lloyd George oft hlust- að á kvartanir smábændanna yfir stór- bændunum, er áttu flestar jarðirnar og voru jafnan dómarar í sjálfs sín sökum. Atkvæði gegn vilja jarðeiganda, eða annað smáræði, gat kostað leiguliðann útbyggingu af jörðinni, án þess að hægt væri að leita óhlutdrægs dóms. Lloyd George gerðist [jví brátt sem málfærslumaður verndari fátæk- linganna. Hann kærði sig kollóttan um [jessa sjálfkjörnu dómara, svaraði peim um hlutdrægni og vann brátt mál fátæklinga, er brotið höfðu ýmislegt gegn þessum sér- réttindum kirkju og stórbænda. Hann beitti mælsku sinni jafnt í réttinum, á bænasam- komum og stjórnmálafundum. Hann skrif- aði eldmóði prungnar stjórnmálagreinar í blöðin frá sjónarmiði, er skipa mundi hon- um nú í flokk jafnaðarmanna, en jafnaðar- menska var pá ópekt hugtak í Wales, og gekk hann pví í flokk frjálslyndra manna. Nafn hans fór nú að verða pekt víðs- vegar um Wales. Hann hafði pá þegar sprengjur á reiðum höndum, er hann lét springa, er honuin fanst athygli fólksins dofna. Hann var nú kosinn i anjtsráðið, og 27 ára náði hann heimakjördæmi, u úr höndum íhaldsmanna, enda barðist hann pá fyrir pjóðlegu og trúarfarslegu sjálf stæði Walesbúa á pingi Englendinga í London. loyd George hefir yfir 40 ár verið ping- — maður sama kjördæmis, og því »faðir neðri málstofunnar«, eins og sá er oft kall- aður, sem lengst hefir starfað [iar. Hann hef- ir á víxl strítt, haslað völl, hundsað, skemt, smjaðrað og töfrað löggjafa neðri málstof- unnar. Sem nýbakaður pingmaður gat hann reynst sem staður hestur, og jafnvel skeytti ekki um vilja flokksins, þegar Wales átti í hlut, er hann unni svo mjög. En hann gat og líka roðnað af ánægju, er hinn mikli foringi, Gladstone, kinkaði til hans kolli i viðurkenningarskyni. Hann er nú fyrir löngu þjóðkunnur flokksforingi, og Lloyd George á fyrstu þingrnenskuárum sínum. dökkhærður og fölleitur. slyngur samningamaður, og loks sá mað- ur, er um lengri tírna hélt örlagaþráðum Englands í hendi sér á erfiðustu styrjald- artímum, sem heimurinn hefir |>ekt. Cron- well bauð pinginu byrgin með lier af baki sér fyrir prem öldum, en Lloyd George gerði næstum pað saina 1916, að eins með eigin kröftum. »Litli welski málfærslumaðurinn« fann brátt, að almenningur var fljótaii aö meta hæfileika hans, en samstarfendur hans í pinginu. Vaxandi lýðhylli hans opnaði augu hinna frjálslyndu leiðtoga, svo að hann hækkaði að metorðum innan flokks- ins, og 1905 náði hann, 42 ára gamall, ráðherrasessi. Með pví opnaðist honum brautin til hinna æðstu valda. Pegar athuga skal framgang Lloyd George fyrstu tuttugu árin af stjórnmálaferli hans, verður að hafa pað hugfast, hversu marga erfiðleika hann hafði við að stríða. Hann

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.