Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1933, Page 15

Heimilisblaðið - 01.09.1933, Page 15
HEIMILISBLAÐIÐ 139 er kunnugt um Sassí,« sagði Caverly við ungu stúlkuna, sem stritaðist við að halda sig samhliða honum. Hann gekk hratt með sveiflandi hreyfingum, sem einkenna gang eyðimerkurbúa. »Við fengum vitneskju um heilmargt, sem á daga hans hafði drifið,« sagði Bó. »Hann sagðist hafa verið sendur til Norð- urálfu, þegar hann var á áttunda árinu.« »Já, ég veit það. Tagar Kreddache sendi hann þangað til að læra nýtízku hernaðar- list þegar á unga aldri.« »í Norðurálfu lærði Sídí Sassí reiðlist, skylmingar og skotlist,« sagði Bó Treves ennfremur. »Hann lærði einnig hernaðar- fræði og alt sem heyrir hernaðarTist til. Hann dvaldi lengst af í París og komst þar einhvernveginn inn á herforingjaskó'i- ann. En það var ekki, fyr en hann var orðinn fullorðinn. Ástæðan til þess að Tag- ar sendi hann burt á barnsaldri, var sú, að hann var hræddur um líf barnsins.« »Ég hefi ekki heyrt þess getið fyr,« mælti Caverly. Pau voru nú komin á slóö ræningjaflokksins, og Caverly sneri nú i suðvestur og fyígdi krókóttri úlfaldaslóð- inni. »Iíann var ef til vill heilsulítill?« »Nei, það var hann ekki. En eftir því, sem mér hefir skilist átti Kreddache höfð- ingjaættin óvini. Einn þeirra var höfðingi yfir ættkvísl er átti heima nálægt Gazim.« »Já, í Khadrim,« sagði Caverly. »Pað er höfðinginn Zaad ibn Dheila, sem á þar heima. Pað eru blóðugir bardagar r Tagar og Zaad, gamalt ættarhatur, sern haldist hefir í marga ættliðu. Tagar óskar einskis heitar en að vinna Khadrim og höggva höfuðið af Zaad, og á hinn bóginn ber Zaad sömu ósk í brjósti gegn Tagar og- Gazim. En alt til þessa hefir hvorug- ur þeirra árætt að hefja óeirðirnar. Lendi þeim saman á annað borð, linnir eigi þeim ófriði, fyr en yfir lýkur, og annar hvor þeirra verður algerlega yfirunninn og þorp hans lagt í rústir.« »Því hefir verið spáð,« mælti unga stúik- an, að þegar Sídí Sassí verði 25 ára, muni hann vinna Khadrim. Það kvað hafa ver- ið einhver eyðimerkur-spámaður, sem hefi*' spáð þessu.« Caverly leit skáhalt til förunauts síns og horfði síðan hugsandi í áttina til tjald- bálanna, er nú urðu æ skírari og skýrari hinu megin við sandöldurnar. »Hvar hafið þér heyrt þetta?« spurði hann »Sassí sagði okkur það sjálfur. Að öll- um líkindum hefir Zaaá heyrt um spádóm þennan, og er hræddur um, að hann ræt- ist. Pess vegna sendi Tagar son sinn á brott. Sadí sagði okkúr, að það hefðu ver- ið gerðar ítrekaðar tilraunir til að drepa hann á eitri, meðan hann var á barnsaldri. Zaacl hafði þá annao hvort mútað ein- hverjum af mönnum Tagars eða þá sent einn af sínum mönnum inn í Gazim. En hvað um það. Sökudólgurinn fanst ekki, og svo var Sassí sendnr til Norðurálfu.« »Pað er þá ýmislegt, sem ekki er haft orð á í þrælastíunni,« rnælti Caverly. »Drengurinn var sendur að heiman und- ir umsjón eins af prestum Tagars,« sagci unga stúlkan,« svo að uppeldi hans færi fram í samræmi við siði og trúarbrögð þjóðar hans. Prestur þessi dó, þegar höfð- ingjasonurinn var átján ára, en Sassí leyndi föður sinn því. Honum geðjaðist bezt að tilverunni eins og þá var komið. Hann tók nú sjálfur við peningum þeim, sem sendir voru til að greiða með upp- eldi hans, og fyrir fé þetta skemti hann sér svo dýrðlega í Parísarborg.« Caverly blístraði. »Jæja. Pað er þá svona lagað! Það var svei mér dálaglegur höfð- ingjasonur að fá heim aftur sem útlærðan hernaðarfræðing. Það hefði orðið heldur en ekki skrípaleikur, þegar honum heföi lent saman við annan eins eyðimerkurúlf og gamla Zaad.« »Ég held, að hann hafi ekki verið sérlega iðinn við hernaðarnám sitt,« sagði unga stúlkan. »Hann myndi tæplega hafa orðið fær til þess að láta gamla spádóminn ræt- ast.« »Hm!« murraði Caverly. »En hann kunni samt að skylmast og hafði lært riddara- liðsfræði og allskonar merkjasendingar og hernaðarfræði — já, það er svei mér skringilegur heimur, sem við lifum í nú á dögum.« Hann stóð í djúpum hugsunum og sneri stóra hringnum, sem hann bar á vísifingri. Það var hringur með afar stórum blóð- rauðum rúbín. Litur steinsins var eins og hinn rauði eldur, sem brann í blóði allra höfðingja Kreddache-ættarinnar. »Tagar sendir syni sínum byssukúlu i gegnum ennið, undir eins og hann kemur heim aftur, og í hans stað fær hann svo

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.