Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1919, Blaðsíða 8

Heimilisblaðið - 01.08.1919, Blaðsíða 8
120 HEIMILISBLAÐIÐ báðir, og þetta sagði hún nieð þeirri ástúð að þeir sefuðust báðir. Easlling tók í hönd sj'stur sinnar og liélt henni fast og mælti: »Mig tekur það sárt, elsku Úrsúla, að eg gat ekki stjórnað mér betur; eg get ef til vill«, mælli hann og leit til mágs síns, »gert meira gagn niðri en hérna«. Svo slepti hann hendi systur sinnar og hljóp á dyr. Payne gat varla stilt sig um að hljóða upp yfir sig. »Eg verð að fara og sjá um að hann geri ekkert ilt af sér«, mælti hann, og þaut á eftir mági sin- um, hvað sem Úrsúla sagði. Eins og Payne hafði við búist, þá var Eastling á leiðinni inn í herbergið til Ganes, og Payne náði í liann við dyrnar. »Hvað heíirðu nú í liyggju?« spurði Payne stuttur í spuna. »Og eg ætla bara að tala við gullsmiðinn«, svaraði Eastling. Nú varð þögn; báðir voru enn svo reiðir, að eigi var annað fyrir að sjá en að þeim mundi þá og þegar lenda samanaftur. En Páll vissi, að sér stóð ekki meiri hætta af Eastling, en Eastling af sér, og þess vegna sneri hann lljótt við blaðinu. »Komdu hingað inn með mér«, sagði Payne tiltölulega vingjarnlega, leyfðu mér fyrst að tala við þig fáein orð«. Þeir gengu í morgunverðarslofuna og Páll harðlæsti á eftir þeim og mæltisiðan: »Jæja, viltu nú vera svo elskulegur og segja mér, livað í ósköpunum þú hefir fyrir þér í þvi að vera svona si og æ að blanda þér í einkamál min ?« »Það vil eg auðvitað fúslega segja þér«, svaraði Eastling rólega, »ef brýna nauðsyn ber til þess«. »Gjörðu þá svo vel og segðu mér það«. »Jæja, maðurinn þarna i næsta herbergi við okkur er ekki fremur heiðvirður gull- smiður en eg er það«. »Hann er máske ekki heiðvirðari en þú, — það getur vel verið, en gullsmiður er hann, hvað sem öðru líður og vilji eg trúa honum fyrir eigum mínum, þá kemur það ekki öðrum við«, mælti Payne. »Nei, ekki er það«, mælti Eastling. »Nei?« veistu nú eiginlega, hvað það er, sem þú ei’t að segja? Er það tilætlun þín, að þú verðir að láta álit þilt í Ijós um alt, af því einu, að svo vill til, að þú ert bróðir konu minnar?« Eastling tylti sér á borðröndina, horfði hvast á mág sinn, og mælli: »Eg held það sé jafngott, að tala út um þetta mál, úr því við erum komnir þetta á rekspölinn. Eg veit, að þessi náungi, sem nú biður eftir gimsteinunum, var að laum- ast á matsölustaðnum, þar sem við átum morgunverð«. »Gerði liann það ? Eg sá hann ekki«. »Já, hann og annar til höfðu augsýnilega mælt sér mót við þig, en gátu ekki átt tal við þig, af því að eg var með þér«. Skarpskygn ertu«, sagði Payne háðslega. ^Það getur verið. En svo mikið veit eg, að þú ritaðir á röndina á matseðlinum og veitingaþjónninn rétti hann að þessum manni«. Páll var alveg hissa. »Er það mögulegt. Það er meira i þig spunnið en maður skyldi ætla«. Eastling lét sem hann heyrði ekki háðið og hélt áfram: »Og þegar eg svo sá hann seinna í gistihúsinu og í þorpinu, þá gat eg ekki stilt mig um að spyrja sjálfan mig, hvað í ósköpunum hann væri þaraðgera«. Payne veik sér þá snúðugt að Eastling og spurði: »Og livað heldurðu þá, að hann bafi verið að gera ?« Eastling lét sér ekki bregða, heldur sagði: »Eg hygg, að við megum ganga að því visu, að návist hans standi í sambandi við perluþjófnaðinn«. Eastling var ekki að fara i felur með það. En Payne var nú ekki óvanur slíku af hendi mágs síns. »ímyndunarafl þitt er fjörugra en svo, að eg geti reiðst þér«, mælti Payne. »Reiður«, svaraði Eastling. Þú gelur þó varla reiðst mér, sem er nýbúinn að bjarga þér úr hinni versl klípu«.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.