Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1919, Blaðsíða 11

Heimilisblaðið - 01.08.1919, Blaðsíða 11
HEIMILISBLAÐIÐ 123 hlýtur að fara óhjákvæmilega, ef þú fer út ur húsinu með tíu þúsund punda virði í gimsteinum, þá er eg þvi miður neyddur til að færast undan áskorun þinni hversu réttmæt sem hún kann að vera írá þínu sjúnarmiði. »Bull!« svaraði Gane fullur óþols, »ekki Vur eg tekinn fastur á gistihúsinu, þegar eg þig ginna mig til að fara tómhentan. “ú hefir nú einusinui leikið á mig að ftmrki, en það skal nú ekki verða í annað sinn«. Payne hristi aftur höfuðið. »Ekki get eg að því gert«, mælti hann. »Eg skil vel, hvernig þú litur á málið; en þó svo sé, að þú liafir einusinni skroppið hr höndum lögreglunnar, þá höfum við eugan rétt til að treysta því, að þú sleppir aU af. Að minsta kosti get eg ekki tekið þá ábyrgð á mig«. »Ekki það ? En það gel eg?« Payne hló góðlátlega. »Það er nú sitthvað. Hvað átt þú i hættu 1 samanburði við mig ?« »Nei, hejrrðu mig nú«. Payne liélt áfram og lagði nú meiri á- herzlu á orð sín. »Eg tek það upp aftur. Hvað átt þú á hættu? Hvað gerir þér það til, þótt þú Sei’t settur inn? Þú ert búinn að sitja tvis- Var i svartholinu og þú ált eins góða æfi þar sem utan þess, stundum betri. íjað er aU öðru ináli að gegna um mig. Það hlýt- Ur þú að geta skilið, þó þú stígir ekki í vitið«. »Jafnvel eg ? það lætur vel í eyrum, Syd«. ^á. það efast eg ekki um. Það er líka eg> seni hjálpað hefi til þessa, hjálpað ykk- U' káðum og skammast mín nú fyrir það«. Gane varð uppleitur. »Jæja þá. Þar kom það, Þú ætlar að fara kenna oss siði til þess að sleppa hjá j Vh láta okkur hafa þann hlut af þýf- v u» sem oss ber, Hvað ætlarðu að gera * það. Skila því aftur eða hvað ? eins og gn seg‘st hafa farið að með perlurnar. Það nú máske ný verzlunaraðferð. En það ætla eg að segja þér, Syd, að eg hefði al- drei getað trúað þvi, að þú legðist svo lágt — skilurðu nú?« Payne hristi höfuðið enn. »Þótt eg væri svo dygðugur sem þú hyggur mig vera, þá gæti eg þó aldrei skil- að þessum gripum aftur, af því að þeir eru sem sé ekki framar til. Eg er búinn að taka steinan úr umgerðinni og —« Gane tók fram í fyrir honum og sagði: »Jæja — það var vel af sér vikið, — af manni, sem er orðinn svo göfugur í sér!« »Já, það er næsta fallega sagt þetla sem þú segir. En eg er því miður alt annað en göfugur. Eg er blátt áfram hræddur«. »Hræddur ?« Þessi viðurkenning kom svo flatt upp á Gane, að hann gat ekki sagt meira. Já, það er ekki annað en hrein og bein hræðsla, sem kemur mér til að titra svona fyrir þvi, að einhver okkar verði gripinn einmitt á þessari stundu. Fyrir missiri, hefði eg getað tekið refsingunni vel, en nú get eg það ekki. Það játa eg. Eg hefi nú í hyggju að byrja á nýjan lei, taka aðra lífs- stefnu«, mælti Payne. Þá hló Gane og var næsta vantrúaður á það. »Já, byrja þú bara, svo fljótt sem þú getur því við komið«, sagði Gane í háði, »við skulum ekki vera því til fyrirstöðu, en láttu okkur fyrst tá það, sem okkur ber«. »Það skal eg lika gera, en ekki núna. Heyrðu mig nú, Gane, eg ætla að spyrja þig, hvort þið Evans getið ekki gengið að nýrri tilhögun á þessu. Þið getið hvort sem er ekkert haft upp úr steinunum að svo komnu máli«. Nú selti Gane dreyrrauðan af vonzku. »Nei, þetta gagnar þér ekki«, hrópaði hann, »knýtti hnefana og gekk að Payne, þessi leikaraskapur gagnar þér ekkert. Okk- ur er annað í mun en að láta okkur lynda fáein pund, og þú farir svo þína leið með alt hitt, sem við höfum verið að vonast eftir mánuðum saman. Við —«. Payne stóð upp og setti upp þykkjusvip og var Gane því vanari, en því elskulega

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.