Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 13

Heimilisblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 13
una — og varð að stilla sig, til að reka ekki upp undrunaróp. Fyrir framan hann stóð ung stúlka með íádæmum ófríð, og hélt á litlu lambi. And- urtak störðu þau hvort á annað, en síðan lygndi hún augum og drúpti höfði. Þau dunduðu við lambið í sameiningu, n^stum án þess að tala orð hvort við ann- 0ð. Hann veitti því athygli, hversu nær- íærin handtök hennar voru og kunnáttu- samleg, og hversu mikla alúð hún sýndi við hjúkrun dýrsins. Þegar þau höfðu lokið bessu, stóð hún upp, leit á hann og sagði: »Þér megið ekki vera reiður við mig. Ég gat bara ekki stillt mig. Þér eruð eina mannveran, sem nokkru sinni hefur ímynd^ nð sér, að ég væri fögur ásýndum." Hún bagnaði, og varir hennar bærðust. „En samt sem áður — samt sem áður fenguð þér yður ekki til þess að kyssa mig.“ »Ég gerði enga tilraun til að kyssa yð- Ur>“ svaraði hann, „vegna þess að ég hélt einmitt, að þér væruð bæði falleg og stór- iynd. Nú veit ég, að þér eruð annað: yndis- leg.“ Hann tók hana í fang sér og veitti henni Þann koss, er hún hafði svo lengi þráð. »Já, en nú skuluð þér fara — strax á stundinni,“ sagði hún á eftir, og það setti að henni grát. „Það hefur enginn kysst mig fyrr. Þér megið ekki eyðileggja það ' heyrið þér það ? — Þér megið ekki eyði- le&gja það.“ 1 senn snortinn og furðu lostinn gekk Hichard í átt til dyranna. Það var eitt- Uvað, sem hann hafði gefið þessari ungu stúlku, enda þótt hann gæti ekki gert sjálf- Urn sér grein fyrir því, hvað það var. Hann reikaði út í þokuna og veitti því athygli, að henni var að létta. En hann ók ekki strax af stað. Hann beið, unz hann |=reindi fótatak karlmanns og heyrði, að ann gekk gegnum hliðið og heim að hús- mu. ^á hélt hann för sinni áfram um dimm- an hjóðveginn, og að baki hans var lítill endabær, sem áður en hann kom hafði verið sveipaður myrkri, en þar sem nú hafði verið kveikt ljós. Afmœliskvcðia til frú Steinunnar Egilsdóttur frá Spóastöðum á sextugsafmæli hennar 10. júlí 1941. — Stödd á Bæ í Borg- arfirði. Man ég sæla sumardaga, sólin lék um tún og haga. Bjart var yfir grænni grund. Fagur ómar fuglakliður, fossa-drunur, áarniður. — Gisti’ eg Spóastaði’ um stund. Einu mun ég aldrei gleyma; ekkjunni, sem þar á heima, gáfuð kona, gæða sprund. Hugdjörf er og sterk í stríði, stórhuga með sæmd og prýði, rauna góð, og létt í lund. Hetjudáð og hugdirfð þína, held ég verkin muni sýna; stafinn þótt þú styðjist við. Þú ert þinnar sveitar sómi, svo mun kveða einum rómi, Biskupstungna búalið. Signi þig nú sjóli hæða. Sextug njóttu lífsins gæða, sittu heil og sæl í dag. — Berist þér til Borgarfjarðar beztu óskir fósturjarðar þér til heilla, — þér í hag. Jóhs. Sig. Keimilisblaðið 101

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.