Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1962, Síða 18

Heimilisblaðið - 01.05.1962, Síða 18
fram fyrir sig. Hún hafði ekki haldið, að þetta myndi ganga þannig fyrir sig. Hvern- ig gat hann tekið þessu á jafn eigingjarn- an hátt og án tilfinninga og tillitssemi? Hún fyrirvarð sig fyrir að vera enn ást- fangin af honum. Smám saman fór hún að setja í töskuna. En allan tímann var hún að hugsa til Sveins. — Sveins, með sitt rauða hár og sín gráu augu, sem stundum gátu virzt alveg græn, einkum er honum rann í skap. Það var óbærilegt hvað hann gat verið heillandi sá maður ... jafn ómerkilegur og hann gat verið. Hún mundi mætavel, hvernig það var þegar þau hittust í fyrsta sinn. Það var á afmælisdegi Maríönnu. Sveinn var starfs- bróðir mannsins hennar, og á eftir hafði Maríanna sagt við hana: „Þú og Sveinn eigið alveg stórkostlega vel saman. Hann þarf einmitt stúlku, sem er sjálfstæð og mátulega köld í framkomu eins og þú, ein- hverja, sem ekki skríður í duftinu fyrir honum.“ En það er nú einmitt það sem ég hef stundum gert, hugsaði Berit. Jafnvel þótt ég hafi virzt vera köld og kærulaus á yfir- borðinu. Ég bý í alltof dýrri íbúð, af því honum geðjast það. Ég hitti Helen næstum aldrei, sökum þess ég veit, að honum fellur hún ekki. Og í kvöld var að mér komið að haga mér andstyggilega, bara vegna þess að ég hafði hugsað mér að fara út með Sveini. Ég verð að reyna að hugsa skyn- samlega, eins og ég gerði jafnan áður en ég kynntist honum. Má vera, að það verði fjarska erfitt og sárt, en það er beinlínis nauðsynlegt. — Hún hafði lokið við að setja í töskuna og var í þann veg að hringja eftir bíl, þegar dyrabjöllunni var hringt. Sveinn var kom- inn. Hún fann unaðarstraum hríslast um sig. Honum var þá alls ekki sama um hana. — „Ef þú ætlar að halda áfram að leika hlutverk hins miskunnsama Samverja," mælti hann eilítið afundinn, „þarftu sjálf- sagt á bíl að halda. Ég er með bíl hér fyrir utan.“ Hún þurfti að hafa stjórn á sér til að hrópa ekki upp: „ó, Sveinn, hvað þetta er dásamlegt af þér!“ En þess í stað svar- aði hún ofur rólega: „Ég er þér þakklát. Ég var alls ekki viss um, hvort ég gæti fengið nokkurn bíl.“ „Það gæti heldur varla gert svo mikið til, þótt við stönzuðum einhvers staðar á leiðinni og fengjum okkur kaffibolla. Það er dálítið, sem ég þarf að tala um við þig,“ sagði hann. Bara andartak hjá Sveini, hugsaði hún, full af ólýsanlegri þrá. En Helena beið eftir henni. Helen var full óþreyju. Nei, það gat ekki gengið. Það væri ekki rétt af henni... „Mér þykir það fjarska leitt,“ svaraði hún og fann, að rödd hennar skalf dálítið. „En það gengur ekki.“ Hann yppti öxlum og greip töskuna hennar. „Allt í lagi — miskunnsama sál,“ sagði hann. „Við komum þá.“ 2. Á heimili Helenar var allt meira á rúi og stúi en nokkru sinni fyrr. Dagstofan með úr sér gengnum húsgögnunum var í megnustu óreiðu. Það hafði ekki verið tek- ið af matborðinu. Uppi við einn vegginn stóð rammalaus mynd. Hryllileg mynd, hugsaði Berit. Sveinn stóð og glápti á myndina með undrun og fyrirlitningu á meðan Berit og Helen kvöddust. „John er sofnaður,“ sagði Helen að lok- um. Látið hann sofa eins lengi og hann getur og gleymið ekki að gefa honum með- alið hans þegar hann vaknar. Vertu svo sæl, Berit mín, og þakka þér fyrir þetta- Ég hringi á morgun.“ Þegar Helen var farin, mælti Sveinn stuttlega: „Mér þætti gaman að vita, hvoi’t nokkuð er til ætilegt hér á þessu heimiln — svo mikið sem hnífapör, þó ekki se meira.“ „Vertu nú ekki kjáni,“ gegndi Berit dá- lítið óþolinmóð. „Helen hefur ekki aðstöðn til að þetta sé öðruvísi en það er. John ef alltaf veikur, og Helen verður bæði að ann- ast heimilið og hann, og reyna svo að vinna sér inn aura með því að mála mál' verk. Hvernig geturðu ætlazt til, að allt se í röð og reglu ...“ 106 HEIMILISBLAÐlP

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.