Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1962, Side 26

Heimilisblaðið - 01.05.1962, Side 26
og nú verður þú að bjarga heiðri mínum með því að vera í fararbroddi í Korsíku- förinni." „Ég get ekki uppfyllt bón þína.“ „Þú getur ekki látið fyrirtækið renna út í sandinn og vini okkar á Korsíku verða fyrir vonbrigðum. Þú hefur tveggja daga umhugsunarfrest. Þá hittumst við hér aft- ur.“ Rinaldo ræddi þetta allt við Dianóru. Hún var samþykk því áformi hans að fara hvergi. Þess í stað reyndi Rinaldo að fá bát með þau til Möltu. Um kvöldið komu tvær konur til dvalar í húsinu, og hafði eigandi hússins tilkynnt fyrirfram um komu þeirra. Hér var Olim- pia enn á ferðinni og Serena í fylgd með henni. Koma þeirra skapaði aukin vand- kvæði fyrir Rinaldo. Hann gekk á fund Olimpiu og spurði hana, hvernig á því stæði, að hún væri hingað komin, þar sem öldungurinn frá Fronteja hefði sagt, að enginn vissi um dvalarstað hans nema hann. Hún kvaðst hafa orðið jafnundrandi og hann, þegar þau hittust hér. Upp hefði komizt um Korsíkuleiðangurinn, vinir hennar hefðu verið handteknir og hún hefði neyðzt til að flýja. Hún ætlaði að flytja öldungnum frá Fronteja þessa voða- legu fregn. „Getur hann ekki bjargað öllu við með töfrabrögðum sínum?“ í þessu kom öldungurinn til þeirra. Hann kvaðst vita, hvernig komið væri, en spurn- ingu þeirra, hvort hann gæti bjargað vin- um þeirra svaraði hann með þessum orð- um: „Þið sjáið, hvað fyrir kemur.“ En hann kenndi Rinaldo um, hvernig ástatt væri. Ef hann hefði verið kyrr í Sikiley, þá væri leiðangurinn þegar kominn til Korsíku. Nú kvaðst hann ekki lengur geta haldið verndarhendi sinni yfir Rinaldo. Hann væri nú í mikilli hættu, en hann skyldi komast að raun um það á hinztu stund ævinnar, hve einlægur vinur Rin- aldos hann væri. Rinaldo gerði þegar í stað ráðstafanir til að tryggja öryggi sitt og Dianóru. Hann tók bát á leigu, sem mundi flytja þau til eyjarinnar Simósu að þrem dögum liðnum. Þangað til ætlaði hann að dyljast í fylgsnum. Enn einu sinni kom öldungurinn frá Fronteja á fund Rinaldos og varaði hann við yfirvofandi hættu, en sagðist geta bjargað honum, ef hann kæmi strax með sér til Korsíku. Rinaldo svaraði honum einungis með háðsbrosi. „Á morgun rennur örlagastund þín upp,“ sagði öldungurinn. Rinaldo svaf lítið um nóttina. Um morg- uninn sendi hann Dianóru bréf og hélt svo til fylgsnis síns, þar sem hann ætlaði að dyljast þennan örlagaríka dag. Hann hafði ekki farið langt, er hann varð var við her- menn frá Sikiley. Hann faldi sig í húsa- garði einum, en rakst þar á mann, sem hann hafði séð fyrr — della Roccella, prins. Rinaldo var í mikilli hugaræsingu, er hann fór inn í húsið á eftir honum og sá þar hina fögru Aureliu. „Ef þú dvelst á þessari eyju, þá yfirgef- um við hana þegar í stað,“ sagði della Roccella. „Ég fer héðan á morgun, og þið sjáið mig aldrei aftur. Guði sé lof, að ég sé ykk- ur bæði heil á húfi. Það er mér mikið gleðiefni.“ „Hefur þú enn samband við fyrri félaga þína?“ „Nei, ég er gerbreyttur maður.“ Garðyrkjumaður hússins kom inn og sagði, að húsið væri umkringt af hermönn- um. „Þeir eru að elta mig,“ sagði Rinaldo. „Þú ert ógæfumaður,“ sagði Aurelia. „Reyndu að komast undan,“ sagði prins- inn. „Það er of seint,“ sagði Rinaldo. Hermenn voru alls staðar umhverfis húsið, og liðsforingi gekk inn. „Hann er hér,“ var hrópað. Það var erkióvinur Rinaldos, svarti munkurinn, sem hafði hrópað. Hann benti á Rinaldo og sagði. „Þetta er Rinaldini. Takið hann fastan.“ „Ert þú Rinaldini?" spurði liðsforing- inn. „Já,“ anzaði Rinaldo. Þá heyrðist háreysti fyrir utan, og öld- 114 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.