Heimilisblaðið - 01.01.1963, Side 6
komu þá auga á sérkennilegt dýr úti í
sjónum, sem velti sér á bakið í brimlöðr-
inu og fór þar í stórum hóp. Nokkrir dýra-
fræðingar voru sóttir, og þeir voru fljótir
að staðhæfa, að þarna væri raunverulega
kominn hinn ,,útdauði“ sæotur, sem birtist
nú að nýju — alls 300 dýr, á að gizka!
En hafotrinum fjölgar mjög hægt. Talið
er, að af 12 fullvöxnum dýrum fæðist ekki
nema einn einasti ungi, og oturmóðirin er
ekki fær um að eiga nema einn unga ár-
lega, jafnvel tæplega það. Auk þess eru há-
karlar stöðug vá fyrir þá, eftir að aukið
hitastig í sjávarstraumum frá Japan hefur
hrakið þessi rándýr hafsins nær og nær
ströndinni. Enda þótt reynt hafi verið að
gera leikvang sæotursins úti fyrir strönd-
um Kaliforníu að friðunarsvæði fyrir
hann, er hann stöðugt í nokkurri eyðingar-
hættu.
Síðasta talning, sem framkvæmd var ár-
ið 1958 úr þyrilvængju, leiddi í Ijós, að
fjöldi sæotursins hefur aukizt aðeins ul1’
rúman helming á tveim áratugum. Vita
er þó, að miklu stærri hópur — jafnvel
5000 dýr — eiga heimkynni norður v'
Alaska og jafnvel enn fleiri í grennd V1
hinar mannauðu Aleut-eyjar. Aftur á n10
er fullvíst, að þeir voru að því komnii' a
deyja út. Og ekki þarf til nema alvarleía
sjúkdóma eða ólöglega veiði sem um ni11®'
ar, til þess að dýrategund þessari vel
gersamlega útrýmt af jörðinni. ,
Þegar Bandaríkjastjórn gerir sitt til a
þyrma sæotrinum, er það ekki gert í Þel!^
tilgangi að hann þurfi síðar að láta Þ^1
sökum verðmæts skinnfelds síns. Menn eX
einfaldlega að reyna að varðveita Þel ‘
lífsglaða, unaðslega dýr, sjálfs þess vetP&'
Menn vilja veita því tækifærið til að ve*.,
sér í brimlöðrinu og ösla í úthafsþokunn1’
kafa, fljóta, leika sér við unga sína og
lifa
að nýju eitthvað af þeirri paradísars^11’
sem frá þeim var tekin um skeið.
6
heimilisb