Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1963, Blaðsíða 28

Heimilisblaðið - 01.01.1963, Blaðsíða 28
höndum um Henry til þess að fullvissa sig um, að hann hefði ekki önnur vopn á sér. Svo benti hann með höfuðhreyfingu í átt til stigans. „Upp með þig,“ sagði hann skipandi röddu. Þeir fóru upp, og Nick gekk fast á hæla hans og þrýsti byssunni í bakið á honum. Þegar þeir nálguðust dyr íbúðarinnar, heyrði Henry raddir þar fyrir innan, og þegar inn var komið, var hann ekki lengi að skilja, hvernig komið var. Alice lá bundin á legubekknum í dagstof- unni og með kefli í munninum. Við hlið hennar stóð dr. Paul og hávaxin og mjög falleg stúlka í loðkápu. Alger þögn ríkti andartak, en svo tók dr. Paul til máls. „Fáið herra Bering stól. Minnizt þess, Nick, að þetta er heimili hans. Má ég kynna, hr. Bering, ungfrú Vallés. Þér þurf- ið ekki að standa upp!“ Þessi hávaxna stúlka kinkaði kæruleysis- lega kolli til Henrys og honum virtist, að hún væri dálítið smeyk við húsbónda sinn. „Nú skulum við hafa ánægjulega sam- ræðustund,“ sagði dr. Paul. „Eigum við ekki að binda hann?“ spurði þorparinn. „Hann er stór og sterkur og gæti orðið erfiður viðfangs, ef kæmi til handalögmála.“ „Nei, það held ég ekki,“ svaraði dr. Paul. „Ég er sannfærður um, að herra Bering skilur það mæta vel, hve óskynsam- legt er að valda vandræðum — er það ekki satt, hr. Bering? Nick hittir ávallt í mark, og hljóðdeyfirinn á byssunni hans er full- kominn. Þegar skotið er úr henni, er eins og hneta sé brotin.“ „Ég er algerlega á valdi yðar,“ svaraði Henry. „Leyfist mér að spyrja, hvað þér ætlizt fyrir?“ „Auðvitað, auðvitað! Það er nú einmitt það, sem ætlunin er að ræða. Meðan ég man það, Gaby, dragðu gluggatjöldin fyrir. Við þurfum ekki á áhorfendum hinum meg- in götunnar að halda, og það er furðulegt, hvað sumir eru forvitnir." Stúlkan í loðfeldinum flýtti sér að draga fyrir gluggana, og nú sá Henry fyrst, að rafljósin voru kveikt. „Þökk fyrir,“ sagði læknirinn og sneri sér að nýju að Henry. „Ég hlýt fyrst og fremst að láta í lj°s aðdáun mína fyrir frábæra aðstoð yðai-) hr. Bering. Ég á við aðstoð við leit að skjólstæðingi mínum ...“ Og hann hneigð1 höfuðið í átt til Alicear og gaut til henn- ar óblíðum augum. „Aðstoð mína?“ hrópaði Henry, en virt1 um leið andlit dr. Pauls fyrir sér af gaun1' gæfni. Hann reyndi að gera sér grein fyrll> af hverju væru þessi leyndardómsfullu ógnvekjandi hughrif, sem fylgdu læknm- um. Þau stöfuðu ekki af andlitsdráttununn Ekkert var athugavert við hátt og breit enni dr. Pauls, nefið langt og dálíb klunnalegt fremst og í hökunni var ábel' andi skarð. Það hár, sem nú var eftir, va1 orðið grátt, en augabrúnir hans dökkal' Að undanskildum augunum, var andln1 aðlaðandi, en ekki fráhrindandi. Það voiu augun, sem eitthvað var athugavert vio- Þau voru köld og stingandi eins og í slöngu’ og Henry gat varla hætt að horfa í aU^u læknisins, eftir að augu þeirra höfðu elllU sinni mætzt. ,, Henry Bering varð skyndilega ljóst, 11 hann var dálítið hræddur við dr. Pauk það var ekki uppörvandi fyrir hann. „Já, fyrir frábæra aðstoð yðar,“ endu1 tók hann til að svara spurningu Henrys' „Ef þér hefðuð ekki verið svo tillitssamu að skilja handtösku yðar eftir hjá þrem vinum Nicks“ — og nú leit hann se snöggvast á Nick, sem sat svipbrigðam og á verði við vinstri hlið Henrys — ef þér hefðuð ekki gert það, þá hefði ef^ grennslanir okkar orðið næsta árangurSl1^ ar. Og þó kannski ekki það, en nokkuð e itt hefur verið að hafa upp á yður. E11 e^ held, að skipulagið hjá okkur sé fráb#1 ’ er það ekki Nick?“ ^ „Ó, jú,“ hreytti þorparinn út um allU munnvikið. n „Ekki er hægt að segja það um þellllU^ hlægilega gervilögregluþjón,“ skaut Hel1 % inn í. „Hann ætti að hafa sama númer einkennishúfunni og kraganum. En hve ig fóruð þér að því að finna okkur?“ ^ „Það eigum við smókingnum yðal g þakka,“ mælti dr. Paul brosandi. »**■ var auðveldara en að heimsækja Þel1, ul- ágæta klæðskera yðar og segja, að Se & 28 HEIMILISBúA11

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.