Heimilisblaðið - 01.01.1963, Page 22
< Þéssi kortamælir er þýzkur
og af mjög hentugri gerð. Vilji
maður mæla vegalengd, t. d. á
vegi á landakortinu, er hann
stilltur eftir þeim stærðarhlut-
föllum, sem gefin eru upp á
kortinu (t. d. 1:100.000) og
rennt yfir vegalengdina og er
þá hægt að lesa hinn ná-
kvæma útreikning.
Hinn 85 ára gamli þýzki járn-
smiður, Robert Pippig í
Braunschweig, stendur ennþá
daglega í verkstæðinu sinu og
sveiflar þungum hamrinum,
þrátt fyrir sinn háa aldur. >
Á næsta ári er búist við að
„viðvörunarstöð" Englands í
Yorkshire verði tilbúin að
fylgjast með öllum fjandsam-
legum eldflaugaárásum.
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir er áætlaður um 43
millj. sterlingspunda. Ein-
kennandi við stöðina eru þrír
risastórir lampar, sem hver
um sig er jafn stór og hvolf-
þakið á St. Pálskirkjunni í
London. Undir þeim eru rad-
artækin. >
< í París hafa verið miklir
kuldar, svo að gosbrunna borg-
arinnar hefur lagt í klakabönd.
< Fingurbjargir eru ekki leng-
ur í tízku. Þess vegna verður
eina verksmiðjan í Vestur-
Þýzkalandi, sem hefur fram-
leitt þær, að hætta störfum nú
um áramótin. Hér á myndinni
er verið að rannsaka síðustu
framleiðslu verksmiðjunnar,
sem stofnuð var árið 1825.
í Englandi er reynt að afla
hernum vinsælda, m. a. með
því að hafa sýningar á tækj-
um og útbúnaði hersins. Hér
sjást börn vera að skoða eitt
af stærstu ökutækjum enska
hersins. >
22
HEIMILISBLÁ®
0