Í uppnámi - 20.07.1902, Síða 3

Í uppnámi - 20.07.1902, Síða 3
Um skákdæmaviðbætirinn í 4. heptinu af “í Uppnámi” (1901). Eptir N. Maximow í St. Pétursborg. Um leið og eg býð hinni háttvirtu ritstjórn skákritsins “I TJppnámi” til birtingar stutta ritgjörð um liin nýju skákdæmi, sem prentuð voru í 4. bepti tímaritsins, vil eg láta þá von mína í ljósi, að þessi grein mín megi stuðla að útbreiðslu skákdæmalistarinnar meðal íslenzkra skákvina. Eg tek hér einungis skákdæmin til meðferðar, en ekki tafl- lokin, því að semja kritík um þau ætla eg manni, sem til þess er fær. Eg skipti hinum 65 skákdæmum, sem birt voru í viðbætinum, en einkum þó hinum 20 tvíleiksdæmum meðal þeirra, í tvo sérstaka flokka. Til hins fyrra flokks tel eg þau dæmi, sem gjörð eru í listarstíl (Kunststil), til hins síðari þau, sem gjörð eru í þjóðarstíl (National- stil).1 Mismunurinn á þessum tveim stefnum í skákdæmalistinni er í því fólginn, að áhangendur listarstílsins leggja sérstaka áherzlu á að ná hreinum og sparlegum mátstöðum, en telja það öldungis þýðingarlaust, þó íinna megi aukalausnir til hálfs og tvítefli2 í óveru- legum afbrigðum. Höfundar þeir, er fylgja hinni síðartöldu stefnu, gæta hins vegar mjög stranglega algjörs “réttleika” í því að forðast alveg tvítefli en við það verður hinum reglulegu (lireinu og sparlegu) mátstöðum náð optast nær einungis með því að erfiðleikarnir við dæmið (hvort sem það eru nú verulegir eða uppgerðar erfiðleikar) verða minni. Listarstíllinn hefur að vísu á síðustu áratugum náð feikna mikilli útbreiðslu, en þó eru jafnan allmargir skákdæmahöfundar, sem algjörlega eða að nokkru leyti hafna meginreglum hans. Einkan- lega kemur þetta opt fyrir í tvíleiksdæmum, en er þó fullkomlega ástæðulaust, því að tvíleiksdæmi verður ekki aðskilið frá hverju öðru 1 Þessi orð hefur Joh. Berqer í Graz í Aust.urríki fundið upp. 2 Vér gjörum ráð fyrir, að útskýra þurfi þessi orð fyrir íslenzkum lesendum. Aukalausn til hálfs (partiell Nehenlösung) heitir það, þegar víkja má frá hinni fyrirhuguðu lausn í öðrum eða síðari leikum. Tvítefli (Duals) er það kallað, þegar hvitt á um tvo eða fleiri leika að velja lil að svara einum af fyrstu leikum svarts, og er það meiri galli en tvímát (þegar hvítt getur mátað með fleirum en einum mauni eða á fleirum en einum reit með sama manni). Ritstj. 4

x

Í uppnámi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Í uppnámi
https://timarit.is/publication/436

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.