Heimir - 01.10.1911, Blaðsíða 5

Heimir - 01.10.1911, Blaðsíða 5
H E I M I R 29 hann: “Tak þetta silfur og skift því mi.lli allra klaustranna í Lydíu og eyjunmn, því mér viröast þau þurfi þess meö ööruin fremur”. Og hann bauö aö ekkert skyldi vera gefiö af því á Egyptalandi, því þar væri miklar nægöir. Og eg, var aö vonast eftir aö hann myndi lofa mig og þakka, en sá aö hann sagöi ekk- ert, hugsaöi aö hann hefðj ekki tekið eftir aö upphæöin væri jafn rnikil, svo eg sagöi: “Vitiö, faðir, aö þetta eru 300 pund silfurs”. En hann svaraöi mér, án þess þó að virða mig þess að líta viö mér: “SS sem þír hrfiö fært þessa ölmusu, hann þarf eigi að láta segja sér hvað það er mikiö, því hann, er þekkir þyngd fjallanna, veit vel hvaö mikiö silfur þetta vegur. Heföuð þér gefiö mér þaö, heföuð þér réttilega mátt segja mér hve mikið það vegur, en, meö því þér gáfuö honuni þaö, sem, eins og guðspjallamaö- urinn komst aö oröi, ekki fyrirleit gjöf ekkjunnar, — tvo smá- peninga, — þá geröist þess líka eigi þörf fyrir yöur aö segja rneira. Hafiö hljótt og veriö því hægur”. “Og nokkru seinna sagði hann mér, að guö heföi opinberað sér þaö að hann myndi bráölega hverfa frá þessu lífi. Og skömmu þar á eftir, án sóttar eöa þrautar, nær því sjötíu ára gamall, þá hann sat viö að riöa smákörfu, finnandi dauöann ná- lægjast, fól hann anda sinn guöi og hvarf í friöi á burt. En áö- ur kvaddi hann mig til sín, og sagöi til mfn: “Takið þessa smá- körfu, því annað hefi eg eigi er eg geti yöur gefiö, pg biðjiö guö fyrir mér”. “Eftir dauða hans yfirgaf eg eyöimörkina, en körfu þessa geymdi eg eins og hinn mesta dýrgrip. Pambó þessi sagði á dauðastundinni, viö þá Paulus Hortoní- us og Ammoníus, frægðarmenn inikilla lærdóma: “Síöan eg kom til eyðimerkur þessarar, hefi eg aö eins neytt þess brauös er eg hefi aflað inér meö erfiði, og ekkert orö hefi eg talaö er eg beri iðran fyrir, en þrátt fyrir þaö, nú, þá eg er á förum, finst mér aö eg sé fyrst aö byrja aö þjóna guöi”.” (Þýtt úr I! Libro D’Oro.) R. P.

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.