Heimir - 01.10.1911, Síða 10

Heimir - 01.10.1911, Síða 10
34 H E I M I R bæði gagnvart Gyöingunum og Róm, til muna. Trú Gyðing- anna vai- sýnt umburöarlyndi af rómverskum stjórnmálamönn- um, vegna þess að hún var þjóöleg trú og haföi hætt öllum til- raunuin að verða nokkuö -meira. Sama umburðarlyndiö var kristnum mönnum sýnt á meðan álitið var, aö þeir væru lítt þektur og lítt skiljanlegur trúflokkur meðal Gyðinganna. Um leið og þeir hættu að vera það urðu þeir fyrir híjtri frá Gyðing- um og grunsemd frá hálfu rómversfcu stjórnarinnar; kristnir menn voru ofsóttir af báöum, Gyöingar voru þá hataðir af ööiu fólki — og það hatur er jafnvel ekki ennþá útdautt í Norðurálf- unni og Ameríku — og kristnir menn, sem fyrst voru skoðaöir sem Gyðingaflokkur, urðu fyrir sömu óvildinni hjá almenningi. A stjórnarvaldsins hliö orsakaðist ofsóknin alls ekki af trúar- bragöalegu umburðarlyndisleysi; það var að eins hægt að kenna það hreinni og beinni þvermóðsku, að kristnir menn neituðu aö gera þaö sem allir aðrir trúflokkar gerön. Hvers vegna gáto þeir ekki tilbeðið sinn hæsta guö undir nafninu Seifur, kannast við engla sína undir nöfnum annara lægri guöa og borið viðtekna virðingu fyrir verndaranda keisarans? Að hin viðtekna, embætt- islega trú ríkisins, hin iögboðna trú, gæti orðið fyrir árásum af trúarlegum ástæöum, gat ekki komið í.huga stjórnmálamanna, sem að minsta kosti frá tímum Agústusar, hröföu, í sínu trúarlega afskiftaleysi, aldi-ei séð neina aðra möguleika í trúarbrögðunum en þá, að þau gætu verið handhægt verkfæri fyrir stjórnrnála- manninn til að notast í pólitiskum tilgangi. Hættan, sem af þessum misskilningi stafar, leynist f rauninni alstaðar þar sem ríkistrú á sér stað. En þó stjórnmálarnenn rómverska keisara- ríkisins hefðu fyrst framan af enga meðvituivd urn að það værii trúarlegur kraftur, sem þeim mætti, þá vissu kristnir menn samt af því. Baráttan vakti fylgjendur ki-istindómsins til meðvitund- ar um sjálfa sig. Jesús hafði gefið svar við þeirri kröfu að dýrk- unin, sem tilheyröi guði, væri gefin keisaranum. Svar kyrkj- unnar braust út f feiknarlegu ofstæki, sem enn í dag biennur með afar-miklum hita — fyrir fl'esta lesendur óskiljanlegum hita — í Opinberunarbókinni. Róm drukkin af blóði heilagra manna og píslarvotta, skal verða eyðilögð, og reykurinn. slcal stíga u pp

x

Heimir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.