Heimir - 01.10.1911, Blaðsíða 17

Heimir - 01.10.1911, Blaðsíða 17
H E I M I R 41 í heild sinni veröa nieö afnáini sérréttinda lávaröanna, eöa kon- ungsvaldsins? Hér í Ameríku stafa flest stærri vandamál félagslífsins af yfirgangi auövaldsins í einhverri mynd. Samtökin aö útiloka samkeppni í vissuni iönaöargreinum, til aö geta ráöiö veröi, eru óinöguleg án auövalds, en afleiðingar þeirra koma aö síöustu niöur á almenningi, setn kaupir og notar. Vinna barna ogkvenna í verksmiöjum, undir kringumstæöum, sem' eru skaðlegar bæöi fyrir heilsu og siðferði, er afleiðing af fégirni auöugra verksmiöju- eigenda. Hlunninda og forréttinda veitingarnar, sem hvergi er eins mikið af, stafa af áhrifum auövaldsins á löggjöfina. En alt þetta, og svo ótal margt annað, hefir í för meö sér illar afleiö- ingar fyrir þjóöfélagiö í heild sinni, Framtíöarvelferö heildar- innar er mjög mikiö undir því komin, aö þaö takist í tíma að hefta þennan auðvaldsyfirgang. Þaö, að ail-mörg kyrkjufélög í Bandaríkjunum hafa nú á síöustu árum ótvíræölega látiö í ljós afstööu sína í ýmsum at- vinnumálum sýnir, aö sú skoöun ryður sér æ betur og betur til rúms, aö kyrkjan hafi hlutverk aö vinna, annaö en þaö aö búa menn undir annaö líf. Þetta hlutverk hennar er þátt-taka í hverju máli, sem snertir almenningsheillina, til góös fyrir aila—* aö stuðla aö hinni stærstu og almennustu velferö. Auövitaö ber mönnum ekki saman um, hvernig þessu starfi kyrkjunnar skuli hagað. Margir eru þeirrar skoöunar, aö bezt sé að sem minst bein afskifti eigi sér staö, aörir vilja hafa þátt-tökuna sem á- kveðnasta. En það, aö kyrkjan megi ekki láta þessi mál meö öllu afskiftalaus, er vaxandi sannfæring, og þaö einnig hjá þeim, sem enn þá halda fast viö gömlu kenningarnar um sáluhjálp og glötun. Hin mannfélagslega starfsemi kyrkjunnar er hvorki líknar- starfsemi né afskifti af stjórnmálum. Líknarstarfsemi hefir alt af, aö einhverju leyti, átt sér staö innan kyrkjunnar. Hún er fólgin í hjálpsemi viö einstaklinga, sem af einhverjum ástæöum líöa skort. Afskifti af stjórnmálum, eins og þau hafa átt sér staö, eru tilraunir kyrkjunnar til að hafa áhrif á stjórnirnar sér í hag sem stofnunar, og stuðningur sá setn kyrkjan hefir látið sönni

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.