Heimir - 01.10.1911, Side 22

Heimir - 01.10.1911, Side 22
4 6 HEIMIR Vilhjálmur í mylnunni. Saga ektir Robert Louis Stevenson. margrét PRESTSDÓTTIR. Margrét dóttir prestsins var stúlka hér um bil nítján ára gömul þegar Villi var um þrítugt. Iiún var fremur lagleg og miklu betur mentuð en nokkur önnur stúlka þar umhverfis, eins og sæmdi foreldrum hennar. Hún leit mjög mikið á sig og hafði neitað nokkrum giftingartilboðum, sem hafði orsakað henni álas nágrannanna. Þrátt fyrir það var hún væn stúlka, sem mundi hafa gert hvern mann ánægðan. Villi hafði ekki oft séð hana, því þótt prestssetrið og kyrkj- an væru að eins tvær mílur frá veitingahúsinu hans, fór hann þangað aldrei nema á sunnudögum. En svo vildi til að gera þurfti við húsakynnin á prestssetrinu; og presturinn og dóttir hans fengu húsnæði í veitingahúsinu hjá Villa um mánaðartíma, gegn niöursettri borgun. Þar sem Vilhjálmur hafði fengið veit- ingahúsið, mylnuna og talsverðar aðrar eigur, sem gatnli malar- inn hafði dregið saman, mátti hann heita efnaður; og þai- að auki var hann orðlagður fyrir lundgæði og hyggindi, sem hvor- tveggja er mjög gagnlegt í hjónabandi; þeir sem voru prestinum og dóttur hans illviljaðir, sögðu að þau mundu ekki hafa kosið sér dvalarstaðinn með aftur augun. Vilhjálmur var allra manna ólíklegastur til að láta ginna sig eða hræða til að giftast. -Maður þurfti ekki annað en að horfa í augu hans, björt og stöðug eins og kyrt vatn, en þó meö einkennilegum glanipa, sem virtist koma innanað frá, til þess strax að ganga úr skugga um að hann var maður, sem vissi hvað hann vildi og fylgdi því fast fram. Mar- grét var sjálf enginn aumingi eftir útliti að dæma, hún hafði stöð- ugt og ákveðið augnaráð og var kyrlát í framgöngu. Það var vafasamt hvort hún gæti ekki verið jafnoki Vilhjálms í stöðug- lyndi, eða hvort þeirra mundi ráða meiru á heimilinu. ef til gift-

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.