Heimir - 01.10.1911, Qupperneq 23

Heimir - 01.10.1911, Qupperneq 23
HEIMIR 47 ingar kæmi. En Margrét haföi aldrei svo mikiö sem um það hugsaö og leit eftir fööitr sínum í mesta sakleysi og afskiftaleysi. Þaö var enn þá svo snemma vors aö gestirnir í veitingahús- inu voru fáir og komu meö löngum millibilum; en lílakrunnarn- ir vovu í blóma, og veöriö var svo hlýtt aö presturinn, dóttir hans og Vi'hjálrnur boröuöu miödagsveröinn úti í laufskálanum og hlustuöu á árniðinn og fuglasönginn, sem kvaö viö í skógin- um. Vilhjálmi fór aö þ}4íja þessir miödagsveröir sérlega skemti- legir. Presturinn var reyndar fremur leiöinlegur mötunautur, sem haföi þann siö aö dotta við boröiö, en hann sagöi aldrei ó- notayrði. Prestsdóttirin, aftur á móti, átti eins vel við alt ^em kringum hana var og hægt var aö hugsa sér; og alt sein hún sagði var svo fallegt og viðeigandi að Vilhjálmur geröi sér mjög háa hugmynd um gáfur hennar. Hann gat horft framan í hana þegar hún beygöi sig áfram og andlit hennar bar við vaxandi furutré; þaö var rólegur glampi í augum hennar; ljósið lá eins og skýla utan um hár hennar; eitthvað sem líktist brosi færöist yfir fölleitu kinnarnar hennar, og Villi gat ekki annað en horft á hana í þægilegri feimni. Hún virtist, jafnvel þegar hún var allra hæglátust, svo fullkomin, svo full af fjöri út í fingurgóma og fötin, sem hún bar utan á sér, aö alt umhverfis hana varö aö engu í samanburöi; og þegar Villi leit af henni á aöra hluti, þá sýndust honum trén lífiaus, skýin hanga í loftinu eins og dauö ferlíki og jafnvel fjallatopparnir töfruðu ekki lengur. Allur dal- urinn konist ekki í neinn samjöfnuö, hvað fegurð snerti, við þessa einu stúlku. Vilhjálmur var ávalt eftirtektarsamur, þegar hann var með fólki; en eftirtekt. hans varö næstum átakanlega áköf þegar hann var meö Margréti. Hann hlustaði eftir hverju orði, sem hún sagöi og leitaði um leið í augum hennar að því sem hún sagði ekki. Mörg góðlátleg, einföld og hreinskilin orö bergmáluðu í hjarta hans. Hann sá aö sál hennar var í jafnvægi, efaði ekkert, þráði ekkert, var full al friöi. Þaö var ómögulegt að aðskilja hugsanir hennar og útlit. Handahreyfingin, rólega röddin, glampinn í augunum og hver lína á líkatna hennar voru í sam- ræmi viö alvarlegu og góðlátlegu orðin sem hún sagði, eins og

x

Heimir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.