Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1935, Qupperneq 12

Kirkjuritið - 01.05.1935, Qupperneq 12
196 Gunnar Árnason: Kirkju'riti'ð; Vér lifum á slíkum umrótstímum. Um það ber öll- um saman. Síðustu 20—30 árin liafa verið leysinga- timar. Einu hefir skotið upp og annað farið i kaf — alt hefir verið óstöðugt og óútreiknanlegt. Það er engu lík- ara en að nýr lieimur hafi verið í smíðum. Ég ætla hér aðeins lauslega að víkja að einni hlið liins nýja tíma — siðaskoðun lians. En fyrst verður að gera þess nokkra grein, hvað hefir skapað hina iiýju skoðun, sem allir finna eða vita, að ríkir i þvi efni — livað er undirrót hinna miklu hreytinga, sem altaf er verið að tala um, að séu orðnar á hugsunarhætti fólks- ins og komi ekki sízt i ljós í hinum nýju siðaskoðunum ungu kynslóðarinnar. Vér megum aldrei gleyma þvi, að vér erum fámenn og fátæk þjóð úti á hjara veraldar. Vér erum eins og litil seytla, sem fellur í mannelfuna úti við ósa henn- ar. Vér sköpum ekki hina nýju tíma. Vér fáum þá seint og síðar meir utan að — þegar þeir eru kanske að verða gamlir annarsstaðar, nær uppsprettunum. Þessvegna má rekja flestar breytingarnar hér á landi til sömu róta og þær eiga erlendis. Og ef einhverjar hreytingar eru minni hér en þar, þá er það af því, að orsakanna hefir siður gætt hjá oss. Þessvegna styöst ég líka í máli mínu við dóma erlendra manna um nútíðina, sérstaklega tvær enskar timarits- greinar, enda þótt ég hirði ekki um að heimfæra orð þeirra beinlínis. Hverjar eru þá helztu breytingarnar, sem orðið hafa á heiminum siðustu 20 árin, þær er mest áhrif hafa haft í þá átt að skapa nýjar lífsskoðanir? (Auðvitað verð ég að taka hér fram innan sviga, að nýju lífsskoð- anirnar eru ekki allar, né ef til’vill neinar, flunkurnýjar — þær eru aðeins nú nýkomnar að völdum, eftir langt eða skamt áhrifaleysistímabil). Fyrst má hér telja hinar miklu framfarir verklegra vísinda og ávexti þeirra. Heimurinn er t. d. altaf að

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.