Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1935, Side 37

Kirkjuritið - 01.05.1935, Side 37
Kirkjuritið. Innlendar fréttir. 221 Athugasemdir við frumvarp til laga um afhending Dómkirkjunnar til safnaðar- ins i Reykjavík og fjölgun sókna og presta í Rcykjavík og öðrum kaupstöðum. Við 1. gr. Dómkirkjan, einasta lcirkja þjóðkirkjusafnaðar Reykjavikur, er „landssjóðskirkja", þ. e. eign ríkisins. Fylgja þar, sem annarstaðar, þar sem líkt stendur á, þau réttindi, að kirkjueiganda bera allar sóknartekjur kirkjunnar, en jafnframt hvílir sú skylda á kirkjueiganda, að hann sjái um kirkju, eða eins og hér er ástatt, kirkjur, er fullnœgi söfnuðinum til guðs- þjónusluhalds. — Undan þessari skyldu vill 1. gr. frv. þessa leysa ríkið fyrir fult og alt með nefndu 30 ára árgjaldi. Við 2. gr. Eitt af mörgu, sem gjörir sóknarskiftingu i Reykja- vík mjög aðkallandi, er hinn öri vöxtur bœjarins, svo að búasl má við, ef ekkert er að gjört, að þau kirkjustæði, sem hentug- ust mega teljast, verði tekin undir aðrar byggingar. Við 3. gr. Með sóknarskiftingu er greitt fyrir því, að áhuga- menn geti beitt sér við fjársöfnun til kirkjubyggingar, hver á sinu afmarkaða svæði. Enda er þá forustan að sjálfsögðu komin 1 hendur sóknarnefnda hverrar sóknar. Við 4. gr. Ef Dómkirkjusókn næði yfir Vikina, Tjarnar- brekku, Þingliolt, Arnarhól, Laufás, Ásgarð og Sólvelli, væru þar nú búsettir um 10 þús. þjóðkirkjumenn, og væri þvi hæfi- legt prestakall með 2 prestum, samkv. frv. þessu. Ef Ilallgrímskirkja yrði bygð á Skólavörðuhæð, væri Skugga- hverfi, Auslurhlíð, Tungan, Suðurhlíð, hæfilegt prestakall fyrir 2 presta með um 8 þús. þjóðkirkjumenn nú búsetta á þessu svæði. Þá er í Vesturbænum þörf á nýrri sólcn er yrði prestakall út af fyrir sig og lieita mætti Nesprestakall. Þar eru búsettir um 4 þús. þjóðkirkjumenn á svæðinu: Ægissíða, Bræðraborg, Selland, Eiði, Kaplaskjól, Seltjarnarnes. Et* það hæfilegur fólksfjöldi fyrir 1 prest til að byrja með. Þá eru þrjú svæði eftir, er hvert ættu að verða sókn út af fyrir sig: Grímsstaðaholt, Skildinganes, Bráðræðisholt, Melarnir, með nálægt 1500 manns. Öskjuhlíð, Fossvogur, Sogin, Kringlumýri, Ártún, Breiðholt, með nálægt 600 manns. Ennfremur: Laug- arnar, Sundin og Rauðarárholt, með nálægt 1400 manns. Gætu allar þessar sóknir verið eitt prestakall, sem þó fyrst um sinn nyti þjónuslu presta Hallgrímssóknar og Nessóknar. Þess skal getið, að nöfn á bæjarliverfum eru frá Ilagstofu ís- tands, eins og manntal hvers hverfis er þaðan fengið.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.