Kirkjuritið - 01.05.1935, Side 34
218
Innl'endar fréttir.
KirkjnHli'ð.'
i’Jullar undir borðuni, en að borðhaldi loknu skenilu menn sér
við söng og hljóðfæraslátl fram eftir nóttu. Fóru hátíðáhöldin
hið bezta l'rani.
Haustið 1913 var byrjað að grafa fyrir grunni kirkjunnar,
en að sjálfu kirkjusmiðinu var unnið frá fardögum lí)14 og
franx á jólaföstu sama ár. Var kirkjan vígð af Þórhalli biskupi
Bjarnarsyni 20. desember 1914. Fram lil |)ess tíma liafði kirkja
salnaðarins verið í Görðum, en Garðakirkja var lögð niður jafn-
hliða því sem Hafnarfjarðarkirkja var tekin i notkun, og t'ékk
Hafnarfjarðarklrkja alla gripi Garðakirkju lil afnota. Uppdrátt
af kirkjunni gérði Rögnvaldur Ólafsson húsameistari í Reykja-
vík, og réði hann mestu um útlit hennar. Varð kirkjubygg-
ingin honum og nafni lians til mikils sóma, enda viðurkend
,.ein hin fegursta og kirkjulegasta bygging á öllu íslandi“, eins
og .lón biskup Helgason komst að orði við vísitazíu 1921.
Yfirsmiður við kirkjubygginguna var Guðni Þorláksson, leysti