Kirkjuritið - 01.04.1937, Page 10

Kirkjuritið - 01.04.1937, Page 10
128 Jón Helgason: Kirkjuritið. staðí og liin samhentasta manni sínum í öllu. Fagurlega minnist vígsluhiskup hinnar látnu konu sinnar i áður- nefndu æfiágripi: „Framúrskarandi trúarþrek konu minnar og stilling studdi liana svo í þrautum og raunum lífsins, að liún átli jafnan örugga og vonglaða guðsharna- lund alt til dauðans. Með því létti hún einnig mér bvrðar iífsins og skilnað okkar við dauða liennar og skildi mér eftir ljúfustu samfundavonir fyrir æfikveld mitt“. Al’ 5 börnum, sem þeim hjónum fæddust, lifir nú aðeins einn sonur uppkominn. í nærfelt 40 ár hafði Hálfdán vígslubiskup verið hinn heilsubezti, er liann nokkuru eftir veturnætur haustið 1933 alt í einu fékk snert af heilablóðfalli, sem hann þó vann smámsaman bug á, svo að liann náði aftur ferlivisl og það meira að segja svo, að heilsan mátti virðast aftur fengin þeim, er sáu hann á ferli. En það duldist þeim, er ekki þektu hann því betur, að þetta áfall hafði lamað sálarkrafta hans og um fram alt traust hans til eigin getu, svo að liann beið þess aldrei bætur. Þessvegna varð honum það fljótt augljóst sjálfum, að ekki væri annað fyrir hann að gera en að skoða þetta áfall sem æðri bendingu um, að nú ætti hann að beiðast lausnar frá embættisverkum, sem hann og gerði næsta vor og var honum veitt lausn frá 30. júní 1934, svo sem fyr segir. En 2% árum síðar upprann lausnarstundin, eftir uppskurð vegna botnlangabólgu. Þótl uppskurðurinn tækist vel, þá var lijarta lians ofboðið með þessu. Sunnu- daginn 7. marz næstliðinn fékk liann liægt og blítt and- lát, svipaðast því, er sól gengur til viðar á fögru haust- kvöldi. Vígslubiskup var sunginn til moldar 23. s. m. að við- slöddu miklu fjölmenni og livílir nú við hlið konu sinn- ar og uppkominnar dóttur, sem þau mistu, í grafreitnum uppi á brekkunni fjrrir ofan þorpið, þar sem sá, er þetta ritar, þykist notið liafa einhvers fegursta úlsýnis frá kirkjugarði hér á landi.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.