Jólakötturinn - 24.12.1910, Page 9
9
rífasf við dautt fólk eða að Ienda í áflogurn
við það, merkir hættu. Að dreyma sjálfan
sig dauðan og látinn í gröf, boðar skjóta
breyting á lífi manns annaðhort til ills eða
góðs. —
Dómara; aðsjáþáá ferð í einkennisbúning
boðar óhamingju; að vera yfirheyrður af
þeim og verða uppvís að einhverjum glæp
boðar skjóta farsæld.
Djöfull; að dreyma þann óvin allra manna
boðar illt í hverri mynd sem mann dreymir
hann, að berja á honum og hrekja boðar gott.
E
Egg; að dreyma þau heil í hreiðri boðar
óvænt happ, en brotin, óhamingju.
Eldur; að sjá hann brenna skært og stilt
á sínum rjetta stað, boðar hamingju, og langt
og farsælt líf; en með miklum reyk boðar
reyði, hættu eða veikindi. — Að sjá hús sitt
brenna eða aðrar eignir, eiðslusemi úlfbúð og
illlyndi. — Að snerta eld án þess að brenna,
boðar hamingju. — Ef maður brennir sig eða
sjer aðra gjöra það, veikindi. — Að dreyma
rúm sitt brenna boðar ósamlyndi eða dauða.
Eldfjall. Að sjá þau spúa eldi boðar
hræðilegar frjettir.
Eyra. Að dreyma það skorið eða meitt
boðar tjón, sem stafar frá lausmálgum vini;