Jólakötturinn - 24.12.1910, Side 12

Jólakötturinn - 24.12.1910, Side 12
12 konu, tjón og vanvirðu en hvítur hestur dygð- uga konu, auð og velgengni; haltur hestur boðar óhapp. Að ríða góðum hesti í hóp með öðru fólki boðar hamingju; að detta af baki boðar eignatjón. Að' sjá hest járnaðan, erfiðleika, mótlæti. ■ Hundar. Að dreyma hund, sem maður á eða er á heimili manns,boðar trygð og góð áhrif frá einhverjum, annars leynilega óvini; ef hundar gelta eða rífa klæði manns boðar að einhver óvinur gjörir manni skaða eða eignatjón. Hús. Að byggja hús boðar þægindi; að finna hús skjálfa boðar tjón þeim sem á eða í því búa. Að fiytja í nýtt, þröngt hús boðar dauða. Að sjá hús það er maður vissi heilt skemt eða brotið, boðar veikindi eða dauöa. Höfuðfat. Fyrir ógiptar persónur að dreyma höfuðfat sett á höfuð sjer boðar skjóta giptingu; ef það er nýtt og fer vel, merkir það góöan maka annars hið gagnstæða. Hlátur boðar hrygð. í ís eða snjór hefir á vetrin enga sjerstaka merkingu í draumi, annars boðar hann góða uppskeru fyrir bændur en eignamissir fyrir þá sem í borgum búa, að bera ís eða byggja úr honum boðar veikindi.

x

Jólakötturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólakötturinn
https://timarit.is/publication/445

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.