Hlín. - 15.12.1903, Side 8

Hlín. - 15.12.1903, Side 8
6 Hlin. Nr. 1. 2. b. Nokkuð fyrir ekkert. Vcrðmætir hlutir í boði fyrir ekkert og lítið sem ekkert, til kaupenda Hlínar. var upphaflega ætlað að komast inn á hvert ista heímili á landinu, og sú "er flestra betri manna skoðun, að hún eigi að komast það, af því að' hún sé gott og uppbyggilagt rit og kosti lítið, — en það vantar mikið á að hún hafi enn náð þeirri útbreið- slu; orsakast það bæði af því, hve mikið er framboðið' hér af prentpappír, og þvi, að útsölumenn blaða og bóka hór á landi munu margir vera fremur óduglegir við það starf. Nú stendur vitanlega þannig á, að útgáfa ritsins. mundi horga sig betur, ef það hefði 3 — 4000 kaupendur er borguðu árl., þó ekki væri nema 40—50 aura hver, á réttum tíma, heldur en með því að hafa 6 — 800 kaupendur, sem flestir borga 1 kr.—1,50 annaðhvort seint eða aldrei, þó ef tíl vill borgi þá upphæð skil- víslega og reglulega. Auk þess sem mikil útbreiðsla er mikilsvert skilyrði fyrir því að auglýsingar borgi sig- sem bezt bæði fyrir auglýsendur og útgefanda, Og enn fremur er þess að gæta, að ef Illín er annars þess virði að vera til, — og hún er held eg alstaðar talin þess virði, — þá er vafalaust að liún gagnar því meira og. almennar, sem lesendur hennar eru fleiri. Með þetta, sem nú var fram tekið, fyrir augum, þá hefi eg afráðið að kosta nú öllu sem hægt er til þess,. að auka útbreiðslu Hlínar stórkostlega mikíð um land alt nú þegar á komandi ári, gef eg því hór með al- menningi kost á að gerast áskrifendur hennar með þeim sérstöku hlunnindum, sem nú verða til greind:

x

Hlín.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín.
https://timarit.is/publication/447

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.