Kirkjuritið - 01.01.1945, Qupperneq 12
(i Á. S.: Áfram með Gufii. Janúar.
hjarta fyrir lieilaga trú Jesú Krists? Þjóð þin verði þjóð
Drottins, eignarlýður hans, og þú einn í hópi hans úl-
völdu. Jesús Kristur lýsi fegurð, friði og lireinleik vfir
íslenzkri æsku, og krýni silfurhár ellinnar kvöldroða sál-
arfriðarins. Sannarlega verður einskis óskað, er betra sé.
En leggjum þá hönd á plóginn. Störfum að því, að
])essar óskir rætist. Árin líða, ævin er stutt; hver stundhi
dýrmæt. Nótum tímann; köstum ekki dýrmætum stund-
um burt i gáleysi og syndasvefni.
Nýtt ár er „óráðin gála, fyrirheit k Framtíðin og reynsl-
an mun levsa úr þeim spurningum, sem vér hljótum að
spyrja um örlög þjóðar vorrar á ltomandi dögum og ár-
um. En eitt skal með vissu fullyrt: Því meiri trú, sem
þjóð vor ber í brjósti, því betur kristin sem hún er, bæði
hugsun hennar, tilfinningalíf og viljalíf, þvi færari skal
hún verða til að mæta örðugleikum og þvi hæfari til að
heyja drengilega og farsæla baráttu. Þvi segjum vér með
bljúgum og biðjandi hjörtum. Áfram mcð Guði. Áfram,
inn i hið ókunna! Áfram í Jesú nafni.
„Áfram með sólunni; yngjast skal veröldin kalda;
áfram til Guðs ríkis; látum ei mvrkrin oss halda.
Sólnanna sól, sértu vort lifandi skjól.
Dýrð sé þér, Alfaðiv alda“.
Gott ár öllum mönnum.
Arni Sigurðsson.