Kirkjuritið - 01.01.1945, Qupperneq 13

Kirkjuritið - 01.01.1945, Qupperneq 13
Kirk.juritið. Kirkjan og framtíðin Morguninn fyrir Bi’jánsbardaga gekk Dörruður ul á Katanesi. Sá hann þá tylft manna ríða til dyngju einnai, og hverfa þar allir inn. Um glugg einn, er á var dyngj- unni, skyggndist liann inn, og sá að konur höfðu þar vef oppfærðan. Mannaliöfuð voru fyrir kljá, mannsþarmar fyrir viftu og garn, sverð fyrir skeið, ör fyrir hræl. Og ineðan þær slógu sinn viðbjóðslega vef, kváðu þær vi(i raust. Þær sungu meðal annars: „Nús ógurlegt umb að litast, es dreyrug ský dregur með himni.“ Og sem eins- konar viðlag: „Vindum, vindum vef darraðar.“ Augu bins skyggna manns sáu þarna í leiftursýn ógn þeirra atburða, sem komandi dagur bar í skauti sínu. í grárri skínxu dögunar stóð hann full uppsettur liinn hamrammi örlagavefur þessa vitstola dags. Sem garn i þá voð voru þandir þarmar þeirra manna, sem vöknuðu í fletum sínum þennan morgun, óafvitandi þeirra skelt- inga, sem biðu þeirra. Með óstöðvandi hraða var vefur örlagánna þegar sleginn og af svo kynngimögnuðum kraf ti, að ekkert stóðsl þar gegn. Enn þá einú sinni liafa rammar skapanornir, svo sem kunnugt er, fært upp sinn darraðarvef. Ýmsir voru þeir, sem fyrir þetta stríð þóttust hlera mega tielztu tóna liins fáránlega vefjarsöngs, þessara nútíma stríðsnorna i ýmsum hugarstefnum síðari tíma, og sáu, að ])egar lök þeirra yfir hugum manna mögnuðust, myndi af leiða miklar hörmungar. Þeir þóttust sjá, að þegar endur fyrir löngu voru þarmar ótal manna og kvenna þandir í blóði drifna voð einhvers ægilegasta slriðs, sem sögur kvnnu frá að herma. Hið æfaforna vefjarsöngsstef, vindum,

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.