Kirkjuritið - 01.01.1945, Side 17

Kirkjuritið - 01.01.1945, Side 17
11 Kirkjuritið. Kirkjan og fmmtíðin. lífi sími til |)ess að bjarga frelsi og menningu framtíðar- innar. Langstærsta siguraflið að stríði loknu mun kristin trú reynasl. Friðurinn verður aldrei uniíinn, nema trúin á (uið kærleikans fari eldi um hjörtu þjóðanna og fórn- fýsi manna verði lieil og sterk. A öllum öldum hefir við- leitni kirkjunnar hnigið i þá átt, að gera menn hæfa til að þola og líða fyrir sannleikann. Á tímum neyðarinnar hefir hún ætið hrotið af sér fjötra deyfðar og lognmollu, og starf hennar þá reynzt stærst. Hinn mikli og frægi sagnfræðingur Carlvle kunni að meta álirif kristinnar kirkju á lífi mannanna og þann þátt, sem hún á i að skapa heilbrigt líf. I liinu milda verki sínu um stjórnar- hyltinguna frönsku segir hann á þessa leið: „Kirkja, hvílíkt orð er það. í því felast meiri auðæfi en í öllum fjársjóðum veraldarinnar. Ó, lesari, hversu sljór erl þú, ef slík kirkja liefir aldrei talað til þín um það, sem er ósegjanlegt um það, sem hefir áhrif og snertir ])að dýpsta i eðli þínu.“ Ég býst við að segja megi með vissu, að þeir muni vera fáir innan kristinna þjóðfélaga, sem aldrei hafa orðið snortnir af boðskapi Krists. Hversu óendanlega andleg'a sljóvir lilytu ])eir þá ekki að vera. Aðalsmark kristinnar trúar hefir verið frá ómunatið, að byggja sér vígi til sóknar «og varnar, jafnvel í hjörtum andstæð- inga sinna. Sá maður, sem sjaldan sækir helgar tíðir, jafnvel hann kemst ekki hjá því að fara að lilusta, þegar ómar kirkjuklukkunnar berast út. Það er vegna þess, að á hak við þann óm stendur mesti andi, sem lifað hefir á þessari jörð, .lesús Kristur, sonur Guðs. Það er vegna þess, að á bak við hann má hlera eins og nið frá strönd eilifðarinnar og hinna æðstu lífssviða. Kirkjan mun um alla framtíð halda áfram að snerta það, sem dýpsl er i hjörtum þjóðanna. Menn, snortnir af anda og hugsjónum kristindómsins, munu einir reynast þess megnugir, að semja varanlegan frið þjóða á mill-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.