Kirkjuritið - 01.06.1959, Blaðsíða 34
Séra Vilhjálmur Briem.
F. 18. jan. 1869 — D. 1. júní 1959.
Er vér minnumst séra Vilhjálms,
geymum vér í huga vorum fagran
kapítula úr sögu þjóðar vorrar.
Þegar ég átti tal við hann, hugsaði
ég um ættmótið og minntist hinna
þjóðkunnu systkina hans. Vér vit-
um um þá heill, sem fylgdi börnum
Eggerts Gunnlaugssonar Briem
sýslumanns og konu hans Ingibjarg-
ar Eiríksdóttur sýslumanns Sverris-
sonar. Það geymist merk saga um
systkinin. Er ég nefni nöfn þeirra,
hugsa ég um þetta tvennt, mannval
og mannvit. Vér heilsum hugljúfum
minningum, er vér nefnum nöfn
systkina séra Vilhjálms, en þau eru: Séra Eiríkur, Gunnlaugur
kaupmaður, Ólafur alþingismaður, Halldór bókavörður, Páll
amtmaður, Sigurður sima- og póstmálastjóri, Eggert hæsta-
réttardómari, Valgerður, er dó ung, Kristín fyrri kona Val-
garðs Claessens, Elín Briem skólastýra, Sigríður kona Helga
verzlunarstjóra, og nú ein eftirlifandi frú Jóhanna, ekkja séra
Einars Pálssonar. Er hún 87 ára og var nú við útför bróður
síns.
í föðurgarði var þetta fyrir systkinunum brýnt: ,,Haf þú trú
og góða samvizku“. Af þessu mótaðist ævistarf þeirra, að þeim
var það í blóð borið að gjöra það, sem rétt er. Man ég, er ég
flutti kveðjuorðin yfir Eggert Briem, bróður séra Vilhjálms,
að ég dvaldi við þessi orð: „Eflið réttinn í borgarhliðunum“.
Heill þjóðarinnar börnum, sem breyta í anda þessara orða:
Lát réttinn vella fram sem vatn og réttlætið sem sírennandi læk.
Sr. Vilhjálmur Briem