Kirkjuritið - 01.02.1963, Side 19

Kirkjuritið - 01.02.1963, Side 19
KIRKJURITIÐ 65 ge Iijá oss, Iieyri l)ænir vorar, og væntuni lijálpar lians í öll- U1)i þrengingum og (lauða, hlýðum lionum í dauða og þreng- ingum og flýjum þær ekki né forðumst, þegar Guð leggur þær á oss. Andstæðingarnir, þ. e. kaþólskir, segir liann, að kenni það eitt um réttlæti fyrir Guði, livernig lifa skuli lieiðarlegu lífi að ytra hætti og gera gott; auk þess geri þcir sér í hugarlund, að nienn geti elskað Guð öllu framar án aðstoðar Heilags anda; kenni þeir, að þannig vinni menn til fyrirgefningar, þ. e. a. s. þegar skynsemin harmar syndina og geri sér upp vilja til að elska Guð; af þ essu hafi sprottið upp óteljandi misnotkun á- guðsþjónustum í kirkjunni, t. d. klaustralieit o. fl. Síðan spyr Melanchton: Hver er eiginlega munurinn á kenningu heim- spekinganna og Krists, ef þessu er þannig farið? Hvert gagn er oss þá að Kristi? Ef vér getum réttlætzt fyrir skynsemina og verk hennar, liver þörf er oss þá á Kristi eða endurfæðingu? Melancliton segir, að heyra megi mikla predikara, sem minnist ekki á Krist eða fagnaðarerindið, en predika út frá siðfræði Aristótels. „En sé kenning andstæðinga vorra rétt, þá er „siðfræði“ Aristótels orðin verðmætt predikanaefni og góð ný Biblía, því að um ytra heiðvirt líferni skrifar naumast nokk- ui- betur en Aristótel“. (Ætli þetta sé mjög ólíkt því, sem vér eiguni að venjast?) Hálærðir guðfræðingar, segir liann, að skrifi bækur og sýni fram á, að orð Krists og spakmæli eftir ^ókrates og Zenó komi heim hvert við annað, — eins og Krist- ur hefði komið til að gefa oss lögmál og boðorð til þess að 'unna til fyrirgefningar syndanna, en alls ekki til að boða náð °g frið við Guð og veita Heilagan anda fyrir sitt eigið blóð og sina eigin verðskuldun. „Ef vér því tökum við kenningu and- stæðinganna, að vér getum unnið til fyrirgefningar syndanna með getu mannlegrar skynsemi og verkuin vorum, þá erum ver orðnir aristótelskir og ekki kristnir“. Trúin segja þeir sé söguleg vitneskja um Krist og að Krist- ur hafi áunnið oss svo nefnda fyrstu náð (eða ,,habitus“), sem 8eri oss auðvcldara að elska Guð. En lítið fer þá fyrir áhrifum ^rists. Ennfremur segja þeir, að vér höfum verk viljans og skynseminnar áður; fyrir og eftir er því eitt og hið sama; þessa fyrstu náð verðum vér að ávinna oss með undanfarandi verk- uin og að vér aukum þessa góðu tillmeigingu með lögmáls- 5

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.