Kirkjuritið - 01.02.1963, Síða 36

Kirkjuritið - 01.02.1963, Síða 36
82 K I R K J III! I T1 D varð liann að fara, þótt honum væri það þvert um geð. Hann lézt að Rafnseyri 1862. Eftirmaður séra Jóns, Árni Böðvarsson, bróðir séra Þórarins í Görðum og faðir séra Helga í Ólafsvík, var einungis 5 ár prestur að Setbergi og fékk Isafjörð 1866, en eftir hann kom fjöliiæfasti prestur, sem hélt Setberg á öhlinni, sem leið. Það var Helgi Sigurðsson frá Jörva, sem var prestur á Setbergi í 9 ár, 1866 til 1875. Hann var læknir að mennt, en lagði á margt gjörva hönd. Var hann bæði ljósmyndari og teiknari. Einnig lagði liann stund á garðyrkju. Var gáfumaður og í röð mikil- hæfustu manna. Eftir að hann var orðinn prestur að Melum í Borgarfiröi, komst prófastur hans þar svo að orði um hann: „Bezta prestshöfuð í Borgarfjarðarsýslu, höfuðið á Melum“. Einkasonur séra Helga, Helgi Helgason, dó að Setbergi 1872, 23 ára, „frænda von og föðurlands síns“, eins og séra Helgi setti sjálfur á grafskrift þá, sem varðveitt er í kirkjunni enn í dag. Séra Helgi sá að vonum mjög eftir honum. Var hann föður sínum til mikils gagns bæði á sjó og landi. Hafði hann numið dönsku og frönsku, og var aðaltúlkur sveitarmanna við Frakka, er þeir lentu í Eyrarsveit og áttu kaupskap. 1 sögu þjóðar vorrar mun séra Helga lengst minnzt fyrir það, að liann gaf árið 1863 15 forngripi sem vísi að íslenzku forngripasafni og lagði þannig grundvöllinn að Þjóðminjasafni Islands. Má kalla séra Helga föður þessa safns, sem á aldar afmæli á næsta ári. Séra Helgi varði miklum tíma til ritstarfa, enda unni liann mjög þjóðlegum fróðleik. Hann gerði margar manna- myndir, m. a. af skáldunum Jónasi Hallgrímssyni og Sigurði Breiðfjörð. Séra Helgi lézt 1888, 73 ára gamall. Bjarni Sigvaldason, prestur á Lundi í Borgarfirði, fékk Set- berg 1875, en komst þangað ekki, því að liann mátti ekki flytja sauðfé sitt vestur vegna fjárkláðans. Fékk hann því leyfi til að vera kyrr á Lundi. Var þá séra Þorvaldi Jónssyni veitt brauðið 1875. Kvæntist liann sama ár Þórdísi Jensdóttur, bróð- urdóttur Jóns Sigurðssonar forseta. Var Þórdís talin líkust honum allra manna að dómi þeirra, sem þekktu þau bæði. Þau Þorvaldur og Þórdís urðu fyrir þeirri miklu sorg á Set- bergsárum sínum að missa háða syni sína. Dóu þeir úr harua- veiki, en þá stóðu menn varnarlausir uppi gegn þeim vágesti. Aðra dóttur sína misstu þau, eftir að þau komu til Isafjarð-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.