Kirkjuritið - 01.05.1966, Blaðsíða 30

Kirkjuritið - 01.05.1966, Blaðsíða 30
220 KIRKJUIUTIÐ liolts að undirlagi Þórðar Þorlákssonar, er þá sat þar á biskups- stóli. Þar voru Passíusálmarnir prentaSir í 4. sinn áriS 1690, — og þá í fyrsta sinn með eigin titilblaði. Aftan á því er mynd af krossfestingunni og vers. Sálmarnir befjast svo á 3. síðu og eru nefndir: „Þeir fimmtíu heilögu Passíusálmar.“ Hér er bætt inn í þeim versum, sem felld voru niður í Hólaútgáfunum, en sálm- urinn: Allt eins og blómstrið eina, felldur niður. Nótur eru við 3 fyrstu sálmana. Á eftir eru prentaðar Kross- kveðjur lieilags Bernbards frá Clairveaux, þýddar af Arngrínn lærða og 7 píslarsálmar sr. Jóns Magnússonar í Laufási. Á öft- ustu síðu er „Gamall buggunarsálmur.“ 5. prentunin kom einnig út í Shálholti áriS 1696. I þetta sinn er brotið stærra en áður og letrið gott. Ber þessi útgáfa af öðr- um, sem á undan voru komnar. Hér eru Passíusálmarnir loks einir I jóða í bókinni. En örkin er fyllt með bæn í óbundnU máli eftir Jóliann Arndt. Þessi prentnn markar að vissu leyti tímamót í útgáfusögunnn bæði vegna liins endurbætta ytra útlits, — og -—- þó fyrst og fremst vegna þess, að í formála kveður Þórður biskup fyrstur manna upp lir um snilld Hallgríms og gildi Passíusálmanna — á þann veg, er síðari kynslóðir liafa staðfest svo rækilega. Á 6. prentun, sem út kom á Hólum 1704, hefir þegar verið lítillega minnzt. — Útgefandinn, Björn biskup Þorleifsson var all gjarn á að láta á sjálfum sér og sínum verkum bera. Hann tók upp latínutitil á Passíusálmunum: Psalleriutn Passionale. Bókin befst síðan á löngum og skrúðmálgum for- mála um skáldskap og sönglist. Margt er þar vel sagt, eins og áður tilvitnuð orð sýna. Því næst gerir biskup, — í „ávarpi til lesarans,“ •— greiu fyrir tveimur breytingum, sem bann taldi sig, -— af trúfræði- legum ástæðum, — liafa orðið að gera á texta Passíusálmanna- Onnur er í 18. versi, 14. sálms. Hann breytti þar setningunm: „Af illum djöflum líða má,“ — í „með illum djöflum líða ma- — Hin breytingin varð þó stórum sögulegri og afdrifaríkari. Hallgrímur segir um iðrunarleysi Júdasar í 12. versi, 16. sálins: „Synd á mót beilögum anda / lield ég, liér liafi skeð.“ En Björn biskup og guðfræðingar lians voru á annarri skoðun —' og breytti biskup þessu í: „Synd á mót heilögum anda /

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.