Kirkjuritið - 01.05.1966, Qupperneq 34

Kirkjuritið - 01.05.1966, Qupperneq 34
224 KIRKJURITIÐ 1855. Aftast er prentuð þessi atliugasemd: „Þessi útgáfa Passíu- sálmanna er lesin saman vi8 eina hina elztu útgáfu þeirra, sern prentu8 er á Hólum 1751, og ví8a lagfœrS eftir lienni.“ Hér er átt við Sálmabókina frá 1751, þar sem Passíusálmarnir eru prentaðir í 15. sinn, að því er fullvíst má telja. / 33. prentun, — Reykjavík 1858, — talin 29. útgáfa, — er formáli Hallgríms að nýju tekinn upp, en honum hafði verið sleppt í öllum Viðeyjarútgáfunum. Utgáfa Hálfdánar Einars- sonar frá 1780 er hér tekin til fyrirmyndar að nýju, — prent- aður eftirmáli lians og orðamunur. Mun Jón Þorkelsson, síðar rektor, liafa liaft umsjón með þessari útgáfu, enda ber húu þess augljóst merki, að þar hafi verið kunnáttumaður að verki- / 34. prentun, sem kölluS er 30. útgáfa, — Reykjavík 1866, ■— eru Passíusáhnarnir í fyrsta sinn prentaðir með latínuletri. Að öðru leyti er útgáfan samhljóða þeirri næstu á undan. Slíkt hið sama má segja um 35. og 36. prentun, Reykjavík 1876 og 1880 —■ nema þar er eftirmáli Hálfdánar Einarssonar felldur niður. 37. prentun, Rvík 1884, — nefnd 33. útgáfa, er og óbreytt að efni. En hrotið er talsvert stærra en áður og letrið fallegt og skýrt. Þessi útgáfa er sú síðasta af þeim 7, sem prentaðar voru af Einari Þórðarsyni. Um liinar 4 síðasttöldu prentanir skal þess svo sameiginlega getið, að í nokkrum hluta upplags liverrar hókar liefir myn4 Hallgríms verið prentuð fremst. A. m. k. liefi ég slík eintök undir liöndum, — öll í samtíma bandi, að því er bezt verður séð, — og því litlar líkur til að myndirnar hafi síðar verið felldar inn í eða bundnar með. Ári8 1887 kom út í Rvík fyrra bindi af Sálmum og kvceSuJU Hallgríms Péturssonar, er Grímur Tliomsen safnaði. I því hindi eru Passíusálmamir prentaSir í 38. sinn, — en sjálfur telur Grímur það vera 37. prentun. Texti sáhnanna er hér allmikið frábrugðinn eldri útgáfum, þar eð Grímur fór eftir eiginliandar- ritinu. Hér eru Passíusálmarnir í fyrsta sinn prentaðir þannigi að ljóðaforminu er fylgt og liver hending í einni línu. 39. prentun, — talin 38. útgáfa, samkvæmt leiðréttingu Gríms Thomsens, — Rvík 1890.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.