Kirkjuritið - 01.05.1966, Side 36

Kirkjuritið - 01.05.1966, Side 36
KIRKJURITIÐ 226 48. prentun, Rvík 1920. Óbreytt frá 46. prentun, nema hér er aftur prentað eftir ljóðlínum. 49. prentun, Kaupmannahöfn 1924: „Passíusálmar Hallgríms Péturssonar, gefnir út eftir eiginliandarriti höfundarins, 250 árum eftir lát lians. Hið íslenzka Fræðifélag í Kaupmannahöfn gaf út. Finnur Jónsson hjó til prentunar. — Finnur Jónssoö skrifar formála. Þá er stafrétt útgáfa eiginhandarrits þess, sem varðveitzt liefir og áður er á minnzt. Því næst koma viðaukar, og loks er löng ritgerð um „lieimildir þær, er Hallgrímur Pét' ursson notaði við Passíusálmana“, eftir dr. Arne Möller. — Þetta er vísindalegasta útgáfa Passíusálmanna, sem prentuð liefir verið. 50. prentun, Rvík 1928. Útgefandi Bókaverzlunin Emaus. Á titilblaði er skýrt frá, að þessi útgáfa sé „samhljóða vísindaút- gáfu hins íslenzka Fræðafélags í Kliöfn, 1924. — Þetta er stærsta alþýðuútgáfa Passíusálmanna. 51. prentun, Rvík 1929. — Eins og 48. prentun frá 1920. 52. prentun, Wpeg. 1938. 1 nýrri útgáfu sálmabókarinnar- 53. prentun, Rvík 1942. Óbreytt frá 51. prentun. 54. prentun, Rvík 1943. Kölluð 52. útgáfa. Þetta er skraut- útgáfa í stóru, fjögurra blaða broti, með myndum eftir Diirer og öðru bókarskrauti. Eintökin eru tölusett. Sigurbjörn Einarsson? núverandi biskup sá um útgáfuna og ritar hann ýtarlegan f°r' mála um Hallgrím og Passíusálmana. Fylgt er texta eiginhand- arritsins. 55. prentun, Rvík 1944. Hér eru Passíusálmarnir prentaðir í „Hallgrímsljóðum,“ —- úrvali, sem Bókaútgáfan Leiftur ga^ út, en Freysteinn Gunnarsson sá um. 56. prentun, Rvík 1944. Kölluð 54. útgáfa. Þetta er nákvæm endurprentun textans frá 54. prentun. En myndir og bókar- skraut tekið burt, formáli felldur niður og blaðsíðutali hreyÞ- 57. prentun, Rvík 1944. Þessi útgáfa er ljósprentuð eftir nótnaútgáfunni frá 1906—1907. Á fyrra titilblaði er prentað með smáu letri í hægra liorni: Ljósprentað í Lithoprent 1944- Eins og sjá má, komu út þrjár útgáfur Passíusálmanna árið 1944. 1 röðun þeirra liér að framan er fylgt útkomutíma. 58. prentun er í íslenzku sálmabókinni, sem gefin var út að nýju í Wpeg. 1946.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.