Kirkjuritið - 01.09.1975, Qupperneq 20
svo nefndri Urðarhlíð í Skeggja-
staðarheiði og rennur til norð-
austurs. í smáá þessa fellur önnur
nefnd Rauðá.
10) Rauðá, kemur ogsvo undan áður
nefndri Urðarhlíð og rennur mest-
part í djúpu gili. Ár þessar eru
ómerkilegar að öðru en því, að í
þeim sameinuðum er foss
nokkur, nefndur Draugafoss, hvar
þær steypast fram af máske tví-
tugu bjargi.
11) Dalhúsaá kemur ennþá framar
undan sömu Urðarhlíð og fellur
móti norðaustri hjá Dalhúsum í
svo nefnda Gæsagilsá.
12) Gæsagilsá, sem hefir upptök sín í
Urðinni norðaustur af Hágang,
rennur þaðan fyrst um sinn til
norðausturs og síðan nokkurn veg-
inn beint til hafs sumstaðar í djúpu
gili.
13) Hölkná, kemur úr svo nefndu
Hólmavatni og fellur móti norð-
vestri og norðri í Gæsagilsá utan
Dalhús. Á þessi, sem er áþekk hin-
um næsttöldu, rennur sumstaðar í
gljúfrum, hvar hún myndar fossa
tvo, sem þó ekki eru háir. Þegar
ár þessar þrjár eru komnar saman
nefnast þær Bakkaá. Fellur hún
eftir það á sléttu út að sjávar
sandi, gjörir þar á sig krók með-
fram sandinum til vesturs, tekur
svo í sig Staðar- og Rauðá og
fellur síðan í einum ós í sjó. Það
þykir horfa líklega við, að Bakkaá
hafi til forna haft ós sinn út úr áður
nefndum krók, þó hafa menn enga
vissu fyrir því.
14) Hafnará, hefir upptök sín úr svo
nefndum Kríutjörnum í Hafnar-
heiði og slær sér þaðan fyrst til
norðurs og síðan til vesturs. Á
þessi er mjög lítil og hefir grunnan
farveg nema við sjóinn, hvar hún
fellur í nokkuð djúpu gili.
15) Viðvíkurá, kemur bæði úr Króka-
vatni, og kallast þá Þverá, og líka
úr Viðvíkurvatni, fellur svo um
Viðvíkurdal móti norðaustri til
sjávar.
16) Stapaá, lítil spræna milli Viðvíkur
og Strandhafnar, er sem áður er
sagt á sveitartakmörkum og fellur
fram af bjargi í sjó.
Fyrir utan áminnstar ár eru hér
óteljandi smásprænur og lækir, sem
hér yrði of langt að reikna.
20. Stööuvötn. Á meðal stöðuvatna
í þessari sveit eru þessi helzt mark-
verð: 1) Þernuvatn, stórt vatn á
Brekknaheiði á sóknartakmörkum. Þar
fyrir framan er 2) Krókavatn, ogsvo
stórt vatn líka um takmörkin. 3) Urr-
iðavatn í Saurbæjarheiði. í sömu heiði
er líka framar 4) Saurbæjarvatn, er
æði stórt og í því tveir hólmar í hvörra
öðrum er dálítið æðarvarp. 5) Reiðar-
axlavatn í Miðfjarðarnesselsheiði
nokkuð stórt. 6) Álftavatn á Kverkár-
tungu. 7) Djúpavatn í svo nefndum
Lambafjöllum í Miðfjarðarheiði. 8) Þor-
valdsstaðavatn, lítið vatn á landamerkj-
um milli Þorvaldsstaða og Skeggja-
staðar. 9) Staðarvatn, fram í Skeggja*
staðar-heiði, æði stórt vatn milli Dal-
húsa- og Gæsagilsár. 10—11) Djúpa-
dals- og Kverkadalsvötn á sveitartak-
mörkum milli Skeggjastaðar og Há-
mundarstaða-heiðar í Vopnafirði-
12) Hundsvatn, lítil tjörn við Sandvík-
urheiðarveg. Framar við sama veg er
13) Miðheiðarvatn, nokkuð stærra-
178