Fríkirkjan - 01.01.1899, Page 18

Fríkirkjan - 01.01.1899, Page 18
14 mörg af þessum messuföllum eru að kenna hlutum, sem ekki verður við ráðið, svo sem: illviðrum og ófærð (einkum á vetr- um), ófærum ám, fjallvegum og öðrum þvílíkum farar- tálma; löngum og torsóttum kirkjuveg, einkum í vetrar- skammdegi;................... .... Allt þetta, og jafnvel ýmislegt fleira, svo sem sjúk- ieik eða önnur óumflýjanleg forföll sóknarprestanna á fleirum eða færrum messudögum, verður sanngjarnlega að taka til greina, áður en menn kveða upp liarða áfellisdóina yfir söfnuðum eða prestum eða hvorumtveggja út af hinum mörgu messuföllum, sem eiga sér stað hér á landi. “ Allt þetta, og sérstaklega hin síðasttilfærðu orð herra biskupsins, sem vér höfum leyft oss að undirstrika, hefði pró- fasturinn í Suðurmúlasýslu þurft að hugleiða, áður enn hann kvað upp sinn harða áfellisdóm yfir fríkirkjusöfnuðinum í Reiðarfirði og presti hans, fyrst á sýnódus 1897 og síðan í Austra 27.—29. tölubl. 1898 — úr því honum nægði ekki það, sem hverjum meðal-kennimanni mundi hafa nægt, nl. að litast um hjá sínum eigin söfnuði og stinga hendinni í sjálfs síns barm. Ummæli prófastsins vöktu, sem vonlegt var, allmikla eptirtekt, fyrst í Reykjavík og síðan út um landið, og hafa án efa víða verið notuð til að hnekkja áhuga manna á frí- kirkjumálinu. Þannig vitnaði einn af prestunum á héraðsfundi Borgarfjarðarprófastsdæmis til þeirra, til að styðja mótmæli sín gegn aðskilnaði ríkis og kirkju. En sannleikurinn verður ekki rotaður með sleggjudómum gegn þeim, sem af veikum mætti eru að reyna að berjast fyrir honum. Gmndvöllur fríkirkju, —0— Á sýnódus 1897, þegar fríkirkjumálið komst í fyrsta sinn inn á þessa prestastefnu og var rætt þar alimikið, talaði dóc- ent Jón Helgason „eindregíð á móti fríkirkjunni" og skýrir sjálfur svo frá í blaðinu V. lj., að „aðalmergurinn í ræðu hans

x

Fríkirkjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.