Fríkirkjan - 01.03.1899, Side 8

Fríkirkjan - 01.03.1899, Side 8
40 maður: „Vilt þú styrkja þetta fyrirtæki?" Og hinn ávarpaði svarar: „Ég vil“, eða „ég vil ekki“, eptir því sem hjarta hans hýður honum. Er eigi slíkt hið eina, sem samboðið er fullu frelsi — hið eina samboðið evangelíi? Munu drottni þóknanleg nauðungargjöld? Er það eigi yflr „glaðan gjafara“, að hann hefir lagt hina sérstöku blessun sina? Hinn eigin- legi siðfræðislegi leyndardómur, sem liggur í öllu frélsi, er þau áhrif, sem það hefur á hjartað, í þessu efni, sú lijarians gleði sem fylgir þvi að gefa. — [Framli.] Bödd í eyðimörku. Rannsóknardómurinn. Mörgum af kirkjunnar mönnum hættir við að taka það illa upp, ef hinar fornu syndir kirkjunnar eru ekki látnar liggja í þagnai'gildi, einkum ef lýst er harðýðgi þeirri og ofsóknum, sem um langan aldur var beitt gegn þeim, sem kallaðir voru villutrúarmenn. En þeir gæta þess ekki, að það var ekki hin sanna kirkja, er beitti þessari harðýðgi; hin sanna kirkja Jesú Krists ofsækir aldrei, livorki má það né getur, ef hún hefur Krists anda. — Kirkja sú, sem ofsótti, kvaldi og deyddi í nafni Jesú Krists, kirkja sú, sem skapaði rannsóknardóminn, var hin frá fallna kirkja (sbr. 2. Tess. 2, 3.), það veldi, sem guðs orð sjálft hafði sagt fyrir að koma inundi fram sem of- sækjandi og eyðileggandi vald (Dan. 7, 25.; Opinb. 13, 7.). Þegar Þorsteinn Erlingsson í kvæðinu „Örlög guðanna" kallaði kirkjuna (ekki Krist, eins og sumir sögðu) „austræna skrýmslið“, þá stórhneixluðust margir á þeim orðum, og að minnsta kosti sumir kirkjunnar menn vildu gjöra Þorstein ó- aiandi og óferjandi fyrir þau. En guðs orðið sjálft kallar ein- mitt þessa frá föllnu kirkju meðal annars „dýrið“ og lýsir dýr- inu eins og — reglulegu skrýmsli. Rannsóknardómur (inquisition) heitir í kaþólsku kirkjunni dómstóll sá, sem hefir það lilutverk að leita uppi villutrú- ar- og vantrúar-menn og liegna þeim. Pessi dómstóll var settur á stofn þegar á dögum Theodosiusar mikla og Justin- ianusar, eða á 6. öld e, Kr., og lá undir yfirstjórn biskupanna,

x

Fríkirkjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.