Fríkirkjan - 01.03.1899, Page 11

Fríkirkjan - 01.03.1899, Page 11
42 Píslartól rannsóknarréttarins voru óendanlega margvísleg, og má með sanni segja að mörg af þeim lýstu djöfullegu hugviti. Hér skal að eins nefndur Maríukossinn. Píslarfærið var myndastytta af „guðs móður“, er að fram- an var búin hvössum nöglum og hnífum. Fram fyrir þetta iíkneski var „hinn seki“ leiddur, og áminntur um aðjátasekt sína. En fengist hann ekki til þess, þá var hann færður fast að því; en handleggirnir voru hreifanlegir og vöfðust þá utan um hann, svo að hnífarnir og naglarnir gengu inn í brjóst hans. Auk þessarar hamslausu fégirndar og grimmdar, sem rannsóknardómendurnir beittu, voru aðrar svívirðingar engu minni. Flest er hulið í myrkrunum; en svo mikið er þó upp- lýst með sögulegum vitnisburðum, ,að þeir beittu hinu ógur- lega og óguðlega valdi sinu einnig til að svala holdsfýsn sinni. Þegar svartmunkaklaustrið í Aragon var tekið með.valdi af munkunum í spánska erfðastríðinu (árið 1707), þá fundust þar alls 400 fangar; en meðai þeirra voru 60 ungar og fríðar döm- ur, sem þrír hinir æðstu rannsóknardómendur höfðu náð á sitt vald af öðrum ástæðum en þeirri, að þær væru grúnaðar um villutrú. [Nord. Conv. Lex.; Jesu Profetier]. Jóhann Húss. Jóhann Húss* er fæddur árið 1373 í þorpinu Hussinecz í Bæheimi. Faðir hans var fátækur bóndamaður af Czecha kyni, og dó hann meðan Húss var á ungum aldri. En rnóðir hans, sem var guðhrædd kona og áleit iærdóm og guðsótta vera hina beztu eign, gjörði allt sem hún gat til að afla syni sínum menntunar, og að síðustu kom hún honum á háskólann í Prag. Þess ei- getið, er hún fylgdi syni sinurn þangað, að hún hafði með sér gjöf til 'að gefa skólastjóranum, eins og siður it *) Sjá mynd í no. 2,

x

Fríkirkjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.