Fríkirkjan - 01.03.1899, Page 13

Fríkirkjan - 01.03.1899, Page 13
44 gegn syndalausnarsölunni Húss og Hieronýmus, og voru liáðir bannfærðir. Húss fór þá burtu úr Prag til Hussinecz, en áhangendur hans fóru á eptir honum þangað, og prédikaði hann þá opt undir berum himni fyrir þúsundum manna. Nokkru síðar kom kirkjuþingið i Konstans (eða Kostnitz) saman, og fór Iíúss þangað eptir ósk Sigmundar keisara og fékk keisari honum griðabréf; vöruðu þó vinir hans hann við að reiða sig á orð keisara. Þegar hann var þangað kominn, lét Jóhann páfi hann vita, að bannfæring hans væri úr gildi numin um stundarsakir og að hann væri í fullum griðunr fiá kirkjuþingsins hálfu. Nokkru síðar var hann fenginn til að mæta fyrir páfakúríunni; en þá lýstu kardínálarnir yfir því, að hann væri kærður um villutrú; og var hann svo settur í varðhald í svartmunkaklaustrinu. Sigmundur keisari mótmælti þessu að vísu; en kardínálar kváðu hann eigi mega skipta sér af aðgjörðum kirkjuþingsins, og við villutrúarmenn væri honum ekki skylt að halda orð né eið; veiferð kirkjunnar ætti að vera honum fyrir öllu. Þess- ar og þvílíkar fortölur höfðu þeir fyrir keisara og lét hann þá undan. En margir barónar og ríkir aðalsmenn sendu til þingsins mótmæli sín gegn þessari svívirðingu. Iíúss var gefið það að sök, að hann hefði ritað og prédik- að gegn klerkavaldinu og páfanum, gegn munkum og dýrð- lingadýrkun, gegn leyniskriptum og hreinsunareldi, gegn sálu- messum og föstum, gegn sakramentum og tíund, í stuttu máli gegn flestum hinum ríkjandi kirkjukreddum. Sumt af því, er hann var kærður fyrir, kannaðist hann við, en sumt ekki, og hélt því fast, fram, að eigi yrði dæmt eptir öðru en heilagri ritningu um það, hvað rétt væri eða rangt í kenn- ingum sinum, Kvaðst hann fús að kalla aptur allt það, er eigi væri samkvæmt henni. IIúss var lengi i varðhaldinu og illa haldinn. Hann kom til Konstans 3. nóvember 1414, og var settur í varðhald 28. nóvember; en mál hans var ekki tekið fyrir fyr en 5. júní árið eptir, og var hann þá orðinn sjúkur og máttfarinn af illum aðbúnaði og vondri vist. Meðan hann sat í varðhaldinu, ritaði hann meðal annars bréf til eins af vinum sínum, og er þetta þar í: „Eg skrifa

x

Fríkirkjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.