Fríkirkjan - 01.05.1902, Blaðsíða 15
mannsins lagt lögbann fyrir einn af vörðunum, og er mi verið
að sækja og verja það mál. Ólíklegt er nú að á því máli
sé möguiegur nema einn endir, nl. að lögbannið verði fellt úr
gildi. Og svo ekki meira um þetta að sinni.
----—o*o^c>—---
cffirRju Syggingin.
Af kirkjubyggingunni er það að segja, að grunnurinn undir
kirkjuna er þvi sem næst albúinn, efniviður til hennar fenginn
og'byrjað i þessum mánuði að höggva saman grindina. Hef-
ur bæjarfógetinn góðfúslega leyft að það væri gjört á hinni
rúmgóðu lóð barnaskólans, og var það góður greiði. Milli þess-
arar lóðar og kirkjustæðisins er lóðarspilda, sein Sigurður
Thoroddsen á, verkfræðingur. Verður þess að, geta sem gjört
er, að hann var með öllu ófáanlegur til að leyfa að gengið
væri að kirkjustæðinu og fluttur þangað efniviðurinn yflr þessa
landspildu hans; en grjót allt hafði verið dregið að á síðast-
liðnum vetri niður tún landlæknis Jónasar Jónassonar, hafði
þar verið ristur ofan af grasvörðurinn, en var lagður yfir apt-
ur, þegar voraði. Var því ekki lengur hægt að fara þá leið,
enda lá hún vel við grjótflutningnum, en illa fyrir flutning trjá-
viðarins.
Nú var úr vöndu að ráða; ómögulegt að komast á
kirkjugrunninn nema fyrir fuglinn fljúgandi eða þá eptir tjörn-
inni; og heldur.en að fara að útvega loptfar frá útlöndum, var
það ráð tekið að leggja staurabrú i tjörnina með landi fram
og framhjá þessari dýrmætu lóð verkfræðingsins. Þykir mörg-
um kynlegt að sjá þessa kirkjubrú, og hefur þetta vakið all-
mikla eptirtekt, að mönnum, sem eru að brjótast i því að koma
upp kirkju, skuli vera gjört svona erflttfyrir.
Vonandi er nú samt, að allt gangi vel eptir þetta og þrátt
fyrir þennan erflðleika og auka kostnað. Er svo ráð fyrir gjört
að kirkjan verði alsmíðuð fyrir 1. okt. næstkomandi, og þá
að eins eptir að mála hana.
En hvar á maður svo að ganga að kirkjunni, þegar liún